Mánudaginn 17. apríl næstkomandi kl. 19:45-21 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla í Víðistaðaskóla.

Við vitum að mikilvægi samvinnu foreldra í skólastarfinu er óumdeilt. Samheldni og samstarf foreldra hefur jákvæð áhrif á velferð barna; skólabrag, geðrækt og líðan nemenda og kennara, svo ekki sé minnst á námsárangur. Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan og farsæld barna í mínu nærumhverfi og skiptir samvinna foreldra máli þegar kemur að farsæld barnanna okkar?

Við hvetjum öll til að mæta á fundinn. Fundurinn verður textaður á ensku á staðnum og í streymi.

Mikilvægt er að skrá sig ef horfa á í streymi: https://forms.gle/z6nzSW1q5W5a8wh56

 

 

Ábendingagátt