Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði
Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði Sumardeginum fyrsta 2026 verður fagnað með fjölbreyttum hátíðarhöldum um allan Hafnarfjörð! Opið er í sund í…
Sumardeginum fyrsta 2026 verður fagnað með fjölbreyttum hátíðarhöldum um allan Hafnarfjörð! Opið er í sund í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug frá kl. 8-17.
Upphitun hefst á Thorsplani kl. 12. Hlaupið verður eftir Strandgötu og skipt í aldursflokka að lokinni upphitun. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið og skráning fer fram með því að mæta á staðinn. Sigurvegarar í flokkum fá bikara og allir keppendur verðlaunapeninga sem eru gefnir af Hafnarfjarðarbæ. Að hlaupi loknu kynnir frjálsíþróttadeild FH frjálsar íþróttir á Thorsplani. Þar verður hægt að prófa langstökk og kúluvarp. Strandgata verður lokuð fyrir bílaumferð meðan á hlaupinu stendur og þar til skrúðgangan leggur af stað á Víðistaðatún kl. 13:15.
Kl. 13:00 mætir Birita í Dali til okkar og ræðir um spárúnir og rúnaílestur, enda mikilvægt að vita hvað sumarið ber í skauti sér
Kl. 14:00 koma knáir kappar og taka snarpa rimmu okkur til skemmtunar
Byrjendum og vönum siglingamönnum er boðið að sigla kayak (9 ára og eldri) eða árabátum. Þeir sem hafa reynslu geta siglt kænum ef veður leyfir.
Í allt sumar verður opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt á fimmtudögum kl. 17 til 22 og laugardögum frá kl. 10 til 13. Öll velkomin.
Gengið verður frá Thorsplani út Strandgötu, gegnum Bæjartorg, inn Vesturgötu gegnum Merkurtorg, Vesturtorg og Flókatorg, Flókagötu og beygt inn Hraunbrún og upp Garðaveg og endað á Víðistaðatúni undir lúðrablæstri Lúðrasveitar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Skemmtileg og fjölbreytt skátadagskrá fyrir alla fjölskylduna á Víðistaðatúni og skátamiðstöðinni Hraunbyrgi. Kaffisala í Hraunbyrgi og söluhús á Víðistaðatúni þar sem til sölu verður ullarsykur, krap og popp og fleira.