Þrettándagleði 2025 eventbanner

Jólin kvödd með dansi og söng á Thorsplani!

Saman kveðjum við jólin og árið 2025 með dansi og söng á Thorsplani í hjarta Hafnarfjarðar! Þar sem jólin í Hafnarfirði hefjast ár hvert. Leikhópurinn Lotta með þau Skjóðu, Langlegg, Grýlu og Lúða munu stíga á stokk á sviðinu á Thorsplani, keyra stemninguna í gang, syngja vel valin lög og bjóða upp á brot af því besta. Í ár fer hátíðin fram í Jólaþorpinu á Thorsplani og hefst veislan stundvíslega kl. 17. Hátíðinni lýkur um kl. 17:45 með glæsilegri flugeldasýningu á vegum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar fyrir framan verslunarmiðstöðina Fjörð.

Hundaeigendur og aðrir dýraeigendur athugið

Sérstök athygli er vakin á því að flugeldasýning hefst kl. 17:45 og mun hún standa yfir í 5 – 10 mínútur. Hundaeigendur eru hvattir til að faðma hundana sína sérstaklega mikið þessa stuttu stund og jafnvel halda þeim heima á meðan á flugeldasýningunni stendur.

Takk fyrir jólagleðina!

Hafnarfjarðarbær þakkar innilega fyrir jólagleðina, jólastemninguna og þátttökuna í hátíðarhöldum aðventunnar 2025. Jólaþorpið í Hafnarfirði toppaði sig enn eitt árið í aðsókn og jólagleði og jólabærinn Hafnarfjörður sjaldan verið fegurri. Takk fyrir ykkur!

Verið öll velkomin!

Ábendingagátt