Myndasögur í míniformi! Þriggja-ramma-myndasögusmiðja í vetrarfríinu með teiknaranum og myndasöguhöfundinum Fannari Gilberts!

Smiðjan er fyrir alla kraka sem vilja fá að spreyta sig á að nota myndasögumiðilinn til þess að segja sögur, og við byrjum stutt – þrír rammar, ekkert vesen. Auðvitað er allur efniviður á staðnum, þátttaka ókeypis og allir krakkar hjartanlega velkomnir.
Ábendingagátt