Skóli fyrir öll – tæknilausnir fyrir nám nútímans
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hefur kafað í öll öpp sem einfalda börnum skólalífið. Hún ætlar að opna huga foreldra gagnvart öllum…
Þríþrautarsamband Íslands býður upp á skemmtilega þríþrautardaga í júní fyrir ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára og 17 til 19 ára.
Markmiðið er að gefa ungmennum góða upplifun af þátttöku í þríþraut (sund, hjól og hlaup) með æfingum sem henta og eru óháð getu og fyrri reynslu. Áhersla á tengslamyndun er stór þáttur á þessum degi. Þjálfuninni er skipt niður í hópa í getustig í hverri grein fyrir sig.
Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á Instagram @triathloniceland, Facebook síðu Þríþrautarsambands Íslands og vefnum: www.triathlon.is