Útgáfu bókarinnar LÆK verður fagnað í stærsta útgáfupartýi landsins á Thorsplani miðvikudaginn 24. apríl. Partýið verður í tvennu lagi. Miðstigið mætir kl. 9 og unglingastigið kl. 10.15
Dagskrá útgáfuhófs:
- Hátíðin sett
- Spjallað um tilurð bókarinnar, hvatning og hrós til nemenda: Bókahöfundarnir Bergrún Íris og Gunnar Helgason
- Tónlistaratriði: VÆB
- Bókakassar afhentir skólastjórnendum og formönnum nemendaráða skólanna
- Nemendur fara aftur til sinna skóla eftir að athöfn er lokið. Bækur verða afhentar nemendum í skólunum
LÆK er samstarfsverkefni milli Mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar og rithöfundanna Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur og Gunnars Helgasonar. Bókin samanstendur af 18 smásögum byggðar á tillögum frá hátt í 2.600 nemendum úr grunnskólum Hafnarfjarðar.
Bókinni er ætlað að efla lesskilning, orðaforða, læsi og lestraráhuga nemenda á mið- og unglingastigi í grunnskólum Hafnarfjarðar, á öllum getustigum. Smásögurnar tengjast hverjum skóla og voru tvær sögur samdar í hverjum þeirra. Við útgáfu á LÆK var áherslan sett á vandaða uppsetningu texta, góða leturgerð og leturstærð sem hentar nemendum í lestrarvanda. Bókin kemur samtímis út sem hljóðbók hjá Hljóðbókasafninu. Auk smásagnanna er stutt umfjöllun í bókinni ætluð foreldrum og kennurum um hvernig dýpka má lesskilning nemenda.
- Kl. 14:00 – 16:00: Bókasafn Hafnarfjarðar – Bergrún Íris og Gunni Helga taka á móti nemendum á bókasafninu og árita bækurnar fyrir þá sem vilja.