Viðhaldsframkvæmdir sundstaða sumarið 2022

Fréttir

Mánudaginn 27. júní hefjast viðhaldsframkvæmdir við Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug sem hafa áhrif á opnunartíma lauganna. Vegna þessa verður aukið við opnun í Sundhöll Hafnarfjarðar og hún opin um helgar á meðan framkvæmdum stendur.

Viðhaldsframkvæmdir sundstaða Hafnarfjarðar sumarið 2022 

Mánudaginn 27. júní hefjast viðhaldsframkvæmdir við Suðurbæjarlaug
og Ásvallalaug sem hafa áhrif á opnunartíma lauganna. Vegna þessa verður aukið við opnun í Sundhöll Hafnarfjarðar og hún opin um helgar á meðan framkvæmdum stendur.

Suðurbæjarlaug – laugin lokar alveg vegna umfangsmikilla viðhalds- og
nýframkvæmda. Stefnt er að opnun laugar í
þrepum um miðjan ágúst n.k. allt eftir
framvindu verks. Nánari fregnir af opnun verða kynntar á vef bæjar þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

Suðurbæjarlaug

Ásvallalaug – í Ásvallalaug verður 50 m laugin tæmd og því
laugarkeri lokað vegna flísaviðgerða. Aðrar laugar, pottar,
böð og líkamsrækt Gym Heilsu á 2.hæð opin venju
samkvæmt. Stefnt er að opnun 50 m laugarkersins að nýju
um miðjan júlí.

Ásvallalaug

Sundhöll Hafnarfjarðar – vegna þessa verður aukið við opnun í Sundhöll Hafnarfjarðar
og verður hún opin um helgar á meðan framkvæmdum stendur. Á
laugardögum verður opið frá kl. 8-18 og á sunnudögum frá kl. 8-20.

Sundhöll Hafnarfjarðar laugin

Ábendingagátt