Víkingahátíðin aldrei verið alþjóðlegri
Víðförlir víkingar voru á Víkingahátíðinni á Víðistaðatúni í ár. Aldrei hafa fleiri þjóðerni tekið þátt. Blíðan lék við hátíðargesti fyrstu dagana og stemningin á hátíðinni einstök sem fyrr.
Víkingar víða að á Víkingahátíðinni
„Það hafa aldrei verið fleiri tjöld á svæðinu. Aðsóknin var góð. Hún var jafnvel meiri en í fyrra,“ segir Jökull Tandri Ásmundason, jarl Rimmugýgjar, nú þegar Víkingahátíðinni í Hafnarfirði er lokið. Víkingarnar taka nú búðirnar niður og geta ekki beðið eftir næstu hátíð.
„Fyrstu þrír dagarnir voru geggjaðir. 17. júní stóð einnig fyrir sínu þrátt fyrir rigningaveður,“ lýsir hann. Spurður um hápunktana segir hann að aldrei hafi þau fengið víkinga jafn langt af, eða frá Ástralíu. Aldrei hafi víkingar frá jafn mörgum löndum tekið þátt. „Það var vonum framar,“ segir Jökull.
Bróðerni milli víkinganna
Hann svarar því játandi að menningin innan hópanna sé áþekk. „Það er bróðerni milli hópanna þótt Rimmugýgjur sé líklega stærsta félagið í heimi,“ segir hann og fer yfir hvernig áherslur hópanna séu ólíkar, hannyrðir, bardagar eða annað tengt víkingahefðum. Rimmugýgur dekki öll sviðin. „Í ofanálag skemmtum við ferðamönnum fyrir utan hátíðina.“ Félagið leggst því ekki í dvala þótt hátíðin sé frá. Undirbúningur fyrir næsta ár er þegar hafinn.
„Já, það er mikil stemning fyrir næsta ári. Við höfum aðrar pælingar með tjaldbúðirnar að ári. Viljum bjóða víkingum að setja upp sínar einingar. Annars líst okkur vel á hringinn sem við settum upp í ár,“ segir hann og að þau horfi einnig lengra.
30 ára afmæli 2027
„Við erum einnig byrjuð að horfa til 17. júní 2027 því þá er 30 ára afmæli hátíðarinnar. Fimmtíu bardagamenn voru á vellinum þegar mest lét í ár. Við stefnum á að sjá 100 skyldi árið 2027.“
Víkingar – Takk kærlega fyrir að auðga lífið í Hafnarfirði.