Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta grænmeti með öðrum af ólíkum bakgrunni til að styrkja tengsl, vináttu og efla holla lifnaðarhætti.
Langar þig að læra að rækta grænmeti í fjölbreyttum hópi fólks í vinalegu umhverfi? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Þá er verkefnið Uppskera / Growing roots fyrir þig og jafnvel alla fjölskylduna.
Uppskera / Growing Roots er samstarfsverkefni GETU samtaka og Hafnarfjarðarbæjar, þar sem fjölskyldum í Hafnarfirði er boðið að taka þátt í sameiginlegri grænmetisræktun í fjölskyldugörðunum við Víðistaðatún. Markmið verkefnisins er að efla sjálfbærni, inngildingu, vellíðan og tengsl með því að skapa öruggt og aðgengilegt rými þar sem fólk hittist reglulega og ræktar saman grænmeti.
Fjölskyldurnar fá úthlutað ræktunarreitum í fjölskyldugörðunum við Víðistaðatún þar sem þau hjálpast að við ræktunina undir handleiðslu garðyrkjufræðings og með stuðningi frá starfsmönnum og sjálfboðaliðum GETU. Boðið verður uppá vikulega fundi í görðunum þar sem þátttakendur geta fengið ráðgjöf, spjallað og notið samvista hvert við annað. Með reglulegu millibili verða haldnir viðburðir og fræðsluerindi.
Við val á þátttakendum verður sérstaklega horft til þess að blanda saman fjölskyldum af ólíkum uppruna; heimamönnum, innflytjendum og flóttafólki sem hafa hlotið alþjóðlega vernd á Íslandi. Saman vinnur hópurinn að því að rækta grænmeti, vináttu og holla lifnaðarhætti.
Verkefnið er styrkt af Lýðheilsusjóði og samfélagssjóði HS orku, en það er einnig hluti af alþjóðlega verkefninu Resilient cities, healthy people sem er styrkt af Evrópusambandinu.
Umsóknarfrestur var til 18. maí 2025 en hefur nú verið framlengdur til 20. maí. Áhugasamir fylli út umsókn hér.
Þátttökugjald fyrir hverja fjölskyldu er 5.000 kr. fyrir sumarið og innifalið í því er:
Athugið takmörkuð pláss í boði!
MYNDATEXTI: Verkefninu var fyrst hrundið af stað í fyrra og gekk afar vel, eins og myndirnar sýna.
Fyrirspurnir sendist á getasamtok@gmail.com
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…