Viltu vera með söluhús/sölutjald á 17. júní?

Fréttir

Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja söluhús á 17. júní  geta nú sótt um söluleyfi til Hafnarfjarðarbæjar. Leyfið gildir fyrir sölu í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem hátíðarhöldin fara fram. Með söluleyfi fylgir sölukofi. Athugið að söluleyfum er ekki úthlutað til einstaklinga. Frestur til 30. maí

Við erum í óða önn að undirbúa 17. júní hátíðarhöld í Hafnarfirði.

Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja söluhús á 17. júní  geta nú sótt um söluleyfi til Hafnarfjarðarbæjar. Leyfið gildir fyrir sölu í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem hátíðarhöldin fara fram. Með söluleyfi fylgir sölukofi. Athugið að söluleyfum er ekki úthlutað til einstaklinga.

Umsóknir um sölutjald/bás þurfa að berast rafrænt í gegnum netfangið: ith@hafnarfjordur.is eða í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6 (merkt 17. júní) eigi síðar en þriðjudaginn 30. maí kl. 15 en þá verður dregið um staðsetningu söluaðila og geta allir aðilar verið viðstaddir.

Ábendingagátt