Viltu vera með söluhús eða atriði á 17. júní?

Fréttir

Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en þriðjudaginn 17. maí kl. 15.

Viltu vera með söluhús á 17. júní?

Hafnarfjarðarbær og þjóðhátíðarnefnd óska eftir áhugasömum söluaðilum til þess að leigja söluhús á 17. júní. Sérstaklega er leitast eftir aðilum sem hyggjast selja mat og drykk. Söluleyfið gildir föstudaginn 17. júní þar sem hátíðarhöldin fara fram í Hafnarfirði. Með söluleyfi fylgir sölukofi og er dregið um staðsetningu söluaðila.

170621_17juniHFJ-116

Viltu vera með skemmtiatriði á 17. júní?

Samhliða leit að áhugasömum söluaðilum á 17. júní er óskað eftir skemmtiatriðum á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna- og fjölskylduskemmtunum víðsvegar um bæinn, leiktækjum og ýmsum uppákomum. Lumar þú að hugmynd að skapandi og skemmtilegu atriði eða uppákomu sem glatt getur huga og hjörtu Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar?

170621_17juniHFJ-39

Frestur fyrir umsóknir og innsendar hugmyndir

Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en þriðjudaginn 17. maí kl. 15 á netfangið: ith@hafnarfjordur.is. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastýra 17. júní, Tinna Dahl Christiansen, tinnadahl@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt