Viltu vera með söluhús eða atriði á 17. júní?

Fréttir

Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en laugardaginn 17. maí.

Viltu vera með söluhús á 17. júní?

Hafnarfjarðarbær og þjóðhátíðarnefnd óska eftir áhugasömum söluaðilum til þess að leigja söluhús á 17. júní. Sérstaklega er leitast eftir þeim sem hyggjast selja mat og drykk. Söluleyfið gildir 17. júní þar sem hátíðarhöldin fara fram í Hafnarfirði.

Viltu vera með skemmtiatriði á 17. júní?

Samhliða leit að áhugasömum söluaðilum á 17. júní er óskað eftir skemmtiatriðum á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna- og fjölskylduskemmtunum víðsvegar um bæinn, leiktækjum og ýmsum uppákomum. Lumar þú að hugmynd að skapandi og skemmtilegu atriði eða uppákomu sem glatt getur huga og hjörtu Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar?

Frestur fyrir umsóknir og innsendar hugmyndir

Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en 17. maí á netfangið: ith@hafnarfjordur.is. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastýra 17. júní, Tinna Dahl Christiansen, í gegnum netfangið: tinnadahl@hafnarfjordur.is

Sæktu um söluhús hér.

Ábendingagátt