Vinnuskóli Hafnarfjarðar – opið fyrir umsóknir 14 – 17 ára

Fréttir

Sumarið 2022 fá 14 – 17 ára unglingar (fæddir árin 2005 – 2008) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að hann sé þrifalegur og snyrtilegur á að líta og ekki síst skemmtilegur fyrir íbúa og ferðamenn sem sækja bæinn heim í auknum mæli.

Nánari upplýsingar um vinnutíma, laun og reglur Vinnuskólans má finna hér

Umsókn um starf hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsækjendur og forráðamenn eru beðnir um að kynna sér m.a. fyrirkomulag og reglur Vinnuskólans áður en umsókn er fyllt út. Viðmiðunardagsetning umsókna er 20. maí en þá verður byrjað að vinna úr umsóknum. Opið verður áfram fyrir umsóknir í maí og júní og möguleiki að fá starf í almennum hópum. Skrifstofa vinnuskólans er staðsett í ungmennahúsinu
Hamrinum að Suðurgötu 14. Frá 10. maí verður skrifstofan opin frá kl. 8 – 16
mánudaga til fimmtudaga og 8-14 á föstudögum. Sími Vinnuskólans er 565-1899 og netfangið vinnuskoli@hafnarfjordur.is

Umsækjendur sækja um rafrænt – sjá hér

Ábendingagátt