Virk nágrannavarsla líkleg til að fækka afbrotum

Fréttir

Það hefur sýnt sig að virk nágrannavarsla fækkar innbrotum, skemmdarverkum og veggjakroti. Íbúar fylgjast betur með nærumhverfi sínu og allir sjá hag sinn í þeirri samvinnu. Síðustu daga hefur nokkuð borið á skemmdarverkum, sér í lagi í ákveðnum hverfum. Öll skemmdarverk og afbrot skal tilkynna beint til lögreglu í síma 112.

Tilkynnum afbrot í 112 og forðumst neikvæða umræðu á
samfélagsmiðlum.

Það hefur sýnt sig að
virk nágrannavarsla fækkar innbrotum, skemmdarverkum og veggjakroti. Íbúar
fylgjast betur með nærumhverfi sínu og allir sjá hag sinn í þeirri samvinnu.
Síðustu daga hefur nokkuð borið á skemmdarverkum, sér í lagi í ákveðnum
hverfum. Öll skemmdarverk og afbrot skal tilkynna beint til lögreglu í síma
112.

Það er hlutverk lögreglunnar að rannsaka afbrot eins og
skemmdarverk og því er mikilvægt að tilkynningar berist beint til þeirra þannig
að hægt sé að grípa til aðgerða með auknum sýnileika og aukinni löggæslu á
svæðinu þannig að uppræta megi vandann. Í öllum tilfellum er nauðsynlegt að
tilkynna afbrot þannig að það sé skjalfest en öll afbrot sem færð eru til bókar
kalla á einhvers konar viðbrögð. Viðbrögðin fara eftir umfang og eðli og
stundum þarf sveitarfélagið að bregðast við með aukinni lýsingu á svæði,
uppsetningu á öryggismyndavélum eða breytingu á aðgengi eða umhverfi. Neikvæð umræða á
samfélagsmiðlum, á hverfasíðum og víðar, sem jafnvel felur í sér nafnbirtingar
og myndbirtingar af einstaklingum er engum til framdráttar og getur jafnvel
varðað við brot á persónuverndarlögum. Slíku myndefni á frekar að skila beint til lögreglu eða þess hverfisskóla sem afbrot eru að eiga sér stað í enda
stundum um að ræða einstaklinga undir lögaldri. 

Vilt þú setja á fót
nágrannavörslu í þínu húsi eða þinni götu/hverfi?

Fyrsta skrefið er að fá íbúa til að skrá sig á þátttökulista
og velja hópstjóra. Til að um virka nágrannavörslu sé að ræða þurfa að lágmarki
70% íbúa húss/götu/hverfis að taka þátt. Reynslan sýnir að árangursríkara er að
skipuleggja nágrannavörslu á minni svæðum s.s. í einni götu eða að það nái yfir
eitt fjölbýlishús. Hver er hugur nágranna til nágrannavörslu? Talaðu við 3-5
nágranna og sjáðu hvort áhugi á málinu er til staðar. Ef áhugi er til staðar er
tímabært að halda áfram, safna undirskriftum, halda kynningarfund og sækja um
uppsetningu nágrannavörsluskiltis.

Sjá nánar upplýsingar um nágrannavörslu  

Ábendingagátt