Vissirðu af þessu? Styrkir til viðburðahalds í sundlaugum
Við vekjum athygli ykkar Hafnfirðinga á því að hægt er að sækja um styrk til viðburðahalds í sundlaugum landsins. Það yrði nú gaman að sjá fleiri viðburði í sundlaugum Hafnarfjarðar.
Menning í sundlaugunum
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins. Tilefnið er að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð heims.
Markmið styrkjanna er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land. Viðburðunum er ætlað hvoru tveggja að vekja athygli á sundlaugamenningu og auðga menningarlíf í heimabyggð og nærumhverfi. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.
Hvatt er til samstarfs sveitarfélaga (rekstraraðila sundlauga), safna og menningarstofnana, félagasamtaka og einstaklinga um viðburði, og þarf staðfesting á samstarfinu að fylgja með umsókninni.
Til úthlutunar eru 4 m.kr. Hámarksstyrkur er 500 þús. kr.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum umsóknagátt ráðuneytisins: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Frábært væri að sjá þessa viðburði hér í Hafnarfirði.