Sópun á götum og göngustígum

Fréttir

Sópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði hefst mánudaginn 3. apríl. Bænum er skipt upp í 14 hverfi og eru hverfin skiltuð upp degi fyrir sópun. Við hvetjum íbúa og starfsmenn fyrirtækja til að taka virkan þátt með sópun í sínu nærumhverfi og ekki síst með því að halda bílum af götum þeirra hverfa sem sópuð eru hverju sinni.

Sópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði hófst mánudaginn 3. apríl. Í fyrra fór hún af stað um miðjan apríl en í ár gerðum við enn betur og fórum af stað með sópun í byrjun apríl þrátt fyrir að veður hafi aðeins sett strik í reikninginn síðustu vikuna. Bænum er skipt upp í 14 hverfi og eru hverfin skiltuð upp degi fyrir sópun með tilkynningu um fyrirhugaða sópun. Samhliða verða eyjur þvegnar. Fyrsta hverfið var sópað mánudaginn 3. apríl og mun vorsópun standa yfir til og með 27. apríl. Höfum þó í huga að veður getur áfram haft áhrif.

Tökum virkan þátt og tryggjum góða sópun!

Við biðjum íbúa um að taka virkan þátt þannig að árangurinn verði sem bestur. Nauðsynlegt er að hafa götur auðar af bílum þann dag sem sópað er þannig að mögulegt sé að sópa kantanna á milli. Íbúar og starfsmenn fyrirtækja geta samhliða nýtt tækifærið og sópað í kring hjá sér. Þannig verður heildin miklu fallegra ásýndar.

Hverfaskipting sópunar

Starfað er eftir ákveðinni verkáætlun sem felur í sér sópun á öllum hverfum á tímabilinu 3. – 27. apríl. Sjá má áætlun á mynd hér fyrir neðan og geta íbúar miðað sópun á plönum sínum og í nærumhverfi við þessa áætlun. Verkáætlun er sett fram með fyrirvara um breytingar sem einna helst geta orðið vegna veðurs (frost) og seinkun hjá verktaka sem sér um sópunina. Stéttasóparabíll (lítill) fylgir götusóp (stórum) í hverfum. Stéttasóparabíll sér um að fara í öll útskot á götum þar sem götusóparabíll nær ekki auk þess að sjá um sópun á göngustígum. Þannig reynir stéttasópari að fylgja sama plani og götusópari en getur verið lengur að vinna. Hvert hverfi er skiltað deginum áður þar sem tilkynnt er um sópun degi síðar.

Gotusopunvor2017

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Við viljum gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara. Þú getur sett inn ábendingu og upplýsingar í ábendingakerfið okkar  eða hringt í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 | netfang: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is . Umhverfis og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2 hefur umsjón með hreinsun gatna og göngustíga.

Ábendingagátt