Afsláttur af fasteignaskatti

Afsláttur af fasteignagjöldum reiknast sjálfkrafa og ekki er nauðsynlegt að sækja um afslátt. Nánar má kynna sér skylirði og reglur hér að neðan.

1. gr.

Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili i Hafnarfirði er veittur afsláttur af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

2. gr.

Rétt til afsláttar eiga þeir sem eru þinglýstir eigendur fasteignar í Hafnarfirði, eiga þar lögheimili og geta átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 umtekjuskatt. Aðilar þurfa einnig að

  • vera 67 ára á árinu eða eldri,
  • hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2025. Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi,
  • hafa ekki leigutekjur af viðkomandi húsnæði,
  • hafa ekki fullvinnandi einstakling/einstaklinga aðra en maka búsetta á heimilinu.

Afsláttur nær einungis til þeirra íbúðar sem viðkomandi sannarlega býr í.

3. gr.

Hjón og fólk í skráðri sambúð fær fullan afslátt þó einungis annar aðilinn uppfylli skilyrði 2. gr. Ef um fleiri en einn íbúðareiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði 1. mgr., er veittur afsláttur til þeirra sem uppfylla skilyrði 2. gr., í samræmi við eignarhlut þeirra.

Verði slit á hjónabandi eða sambúð þá eiga aðilar máls rétt á öðru hvoru eftirtöldu frá og með þeim tíma sem lögskilnaður eða sambúðarslit eru skráð.,

  • að njóta óbreytts afsláttar út álagningarárið óski þeir þess,
  • að vera meðhöndlaðir sem einstaklingar frá og með þeim tíma óski þeir þess, enda geti þeir með fullnægjandi hætti sýnt aðgreindar sértekjur sínar sbr. 4. gr.

4. gr.

Afsláttur er tekjutengdur. Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur síðastliðins árs samkvæmt skattframtali. Við útreikning afsláttar í upphafi árs 2026 er stuðst við skattframtal ársins 2024 en afslátturinn er síðan endurskoðaður þegar skattframtal ársins 2025 liggur fyrir. Leiði endurskoðunin til breytinga á afslætti þá breytist hann vegna þeirra greiðslna sem eftir eru á árinu. Ekki er endurreiknað vegna greiðslna fram að því. Til tekna teljast bæði launatekjur (reitur 2.7. á skattframtali) og fjármagnstekjur (reitur 3.10. á skattframtali). Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og fólks í skráðri sambúð.

Tekjumörk vegna afsláttarins 2026 eru eftirfarandi (miðað er við tekjur ársins 2024 þar til skattframtal ársins 2025 liggur fyrir):

5. gr.

Hafi orðið veruleg breyting á högum umsækjanda er heimilt að víkja frá 2. gr. þessara reglna varðandi búsetu í íbúð og viðmið um tekjumörk sl. árs. og vegna andláts maka.

Hér er einkum átt við sérstök tilvik s.s.:

  • þegar maki hefur fallið frá á árinu og tekjur lækkað verulega,
  • ef um skyndilega örorku er að ræða sem hefur veruleg áhrif til lækkunar tekna.

6. gr.

Reglur þessar skal uppfæra og samþykkja árlega með uppfærðum tekjumörkum.

Samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 3. desember 2025.

Tekjur einstaklinga

Afsláttur Frá kr. Til kr.
100% 0 8.111.000
75% 8.111.001 8.293.000
50% 8.293.001 8.472.000
25% 8.472.001 8.652.000

Tekjur hjóna

Afsláttur Frá kr. Til kr.
100% 0 10.365.000
75% 10.365.001 11.085.000
50% 11.085.001 11.808.000
25% 11.808.001 12.525.000