100 Hafnfirðingar 65+ fá aðgang að heilsueflingu hjá Hress
Góð heilsa skiptir okkur Hafnfirðinga miklu máli. Hafnarfjarðarbær hefur stækkað samning sinn við heilsuræktarstöðina Hress og býður nú tvöfalt fleirum að njóta. Þátttakendur geta nú verið 100 á hverjum tíma, í stað 50 áður. Tímarnir eru niðurgreiddir.
Heilsuræktin Hress tekur vel á móti þér
Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Hress, segir starfið með 65 ára plús hafa gengið vonum framar.
„Það er á fljúgandi siglingu. Nokkrir af bestu þjálfurum okkar sjá um hópinn. Fólkið sem hefur raðast þarna inn er yndislegt og tímabært að fjölga í þeim hópi,“ segir Linda. Unnið sé með hverju og einu á þeim stað sem þau standi.
„Sum fara beint í sjúkraþjálfun. Aðrir blanda öðrum tímum við því þau eru komin í það gott form. Hér hefur myndast vinskapur og kærleikur hjá þeim sem þarna eru og það er gullfallegt,“ segir hún.
Markmiðið að efla heilsu Hafnfirðinga
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir samninginn fela í sér fjölbreytta þjálfun og heilsueflingu fyrir eldri íbúa. „Markmiðið er að efla styrk, þol og hreyfigetu og styðja við betri líðan og sjálfstæði til lengri tíma. Við hér hjá bænum erum afar ánægð með samstarfið við Hress enda viljum við að Hafnfirðingar njóti góðrar heilsu sem allra lengst.“
Samkvæmt þessum nýja viðauka við fyrri samning hækkar framlag Hafnarfjarðarbæjar til verkefnisins. Það verður 1,1 milljón króna á mánuði, miðað við 100 þátttakendur fram til 31. desember 2026.
Heilsurækt lykilatriði í lífinu
Linda segir að hún geti ekki lýst því hvað heilsurækt skipti miklu máli. „Fólk frestar því að fara á stofnun og heldur heilsunni lengur. Hjá okkur eru virkir þegnar í samfélaginu sem skila stórkostlegu dagsverki. Þetta eru bæjarbúar í fullu fjöri. Heilsan er lykilatriði í lífinu,“ segir Linda sem hefur í 39 ár verið með Hress. En nær fólk mjög góðum árangri hefji það ræktina á seinnihluta lífsskeiðisins?
„Já, algjörlega. Við vöndum okkur við það sem við gerum. Við kunnum þetta og vitum hvernig við eigum að hefja leika. Byrjendur geta æft með lengra komnum. Það er munur á þyngd lóðanna og dýpt æfinganna. Það er alltaf hægt að breyta líkamlegu atgervi svo að það telji verulega,“ segir hún. Svo sé félagsskapurinn ekki minna mikilvægt en æfingarnar sjálfar.
„Við erum með setustofu og ég elska að sjá alla ræða málin og ekki séns að ég að ég komist að, því fólk er að kryfja málin og hafa gaman. Við erum kjarni Hafnarfjarðar hérna í Hress,“ segir hún.
„Alltaf hægt að koma, alltaf hægt að fá ráðgjöf. Þetta er einstaklingsmiðuð þjónusta og þjálfun.“
Hvað þarf fólk að gera til að taka þátt?
Tekið er á vel á móti fólki í móttöku Hress. Einnig má versla kort í netverslun á hress.is
Dæmi:
- Mánuðurinn kostar 13.990 krónur með tólf mánaða bindingu
- Mánuðurinn kostar 14.990 í sex mánaða áskrift
- Einn stakur mánuður kostar 17.990
- Prófa má tíma