Netkönnun um ábendingagáttina okkar

Fréttir

Hvernig upplifir þú ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar? Hvernig getum við bætt gáttina? Við leitum eftir skoðun þinni og höfum sett í loftið stutta netkönnum sem gefur okkur tækifæri til að sníða ábendingagáttina okkar enn betur að þér.

Ábendingar þínar skipta máli

Við stefnum á að ná yfir 100 þátttakendum í könnun um ábendingagáttina okkar. Við nálgumst markið óðfluga. Viltu hjálpa okkur að rjúfa múrinn og gera nokkuðgóða gátt enn betri? Frestur til þátttöku hefur verið framlengdur til og með 29. mars. Hvernig upplifir þú ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar? Hvernig getum við bætt gáttina? Við leitum eftir skoðun þinni og höfum sett í loftið stutta netkönnum sem gefur okkur tækifæri til að sníða ábendingagáttina okkar enn betur að þér.

Hvert er þitt viðhorf og hver er þín notkun?

Undirbúningsvinna er í gangi fyrir smíði á nýrri ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar. Ábendingagáttin er farvegur fyrir íbúa og aðra til að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara eða laga þarf í umhverfi eða þjónustu bæjarins. Í þessari könnun viljum við kanna viðhorf og notkun íbúa á núverandi ábendingagátt

Með því að svara hjálpar þú okkur að hanna ábendingagátt sem gerir þér auðveldara að hafa áhrif á þitt nærumhverfi og þjónustu bæjarins.

Það tekur um 3-5 mínútur að svara könnuninni.

Svara könnun

Ábendingagátt