Gunni, Sveinki og Felix í Jólaþorpinu um helgina
Sveinki stýrir söng í Jólaþorpinu í kvöld. Svo hefst árleg flugeldasýning við Fjörð. Gunni og Felix mæta á Thorsplan á morgun. Önnur helgin í Jólaþorpinu okkar er gengin í garð. Nú má ganga á milli jólahúsanna með heitt laufabrauð í hendi eða japanskt te í bolla.
Náum jólaandanum í Jólaþorpinu
Hvað gerist um helgina?
- Föstudagurinn 20. nóvember. Ungmennaráð Hafnarfjarðar kveikir á bláa UNICEF-hjartanu í Firði kl. 18 í tilefni af alþjóðadegi barna. Sveinki tekur svo lagið með börnum og fjölskyldum þeirra á Thorsplani kl. 19. Flugeldasýning hefst kl. 19.20 við Fjarðargötu, beint á móti Firði. Verslanir í Firði verða opnar til kl. 20.
- Laugardagurinn 21. nóvember. Gunni og Felix lesa upp og árita bækur á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 14. Klukkustund síðar koma þeir fram á Thorsplani og þá slást fjölskyldan og börnin úr Gaflóskólanum í hópinn.
- Sunnudagurinn 22. nóvember. Börn og fullorðnir geta sest saman og skreytt piparkökur í Bungalowi Byggðasafnsins við Vesturgötu 32 kl. 13–15. Hafnarborg býður í spjall með listamanni og sýningarstjóra kl. 14. Og hafið augun opin á sunnudagsröltinu því sjálf Grýla verður á vappi um bæinn!
Hverjir verða svo í jólahúsunum?
- Ásdís Arna Björnsdóttir lærði blómaskreytingar á þeim átta árum sem hún bjó í Svíþjóð. Nú er hún flutt heim í Hafnarfjörð og gerir hurðarkransa og aðventukransa samhliða starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur.
- Hafdís Harðardóttir handlitar kerti og mótar meðal annars krúsir, skálar og lítil jólatré úr leir. Allt sem fæst í jólahúsinu hennar er eftir hana sjálfa eða einhvern í fjölskyldunni.
- Korterí kemur með jólakort og merkimiða á pakkana. Ýr Bergsteinsdóttir verður líka með útsaumssett, taupoka, gjafaöskjur og jólaskraut.
- BlueBerry hefur verið hluti af Jólaþorpinu frá 2012. Fjölskyldufyrirtækið kemur aftur með jólaskraut og gjafavörur sem fjölskyldan hannar eða velur sjálf.
- Vígrún býður upp á leðurhanska, leðurtöskur, slæður og skart, meðal annars frá Blakk. Tinna Pétursdóttir hjá Sixpensari.is mætir líka með höfuðföt, þar á meðal hatta, derhúfur og að sjálfsögðu sixpensara.
- KrakkaKrútt verður með talstöðvar og myndavélar fyrir litla landkönnuði, verkfærasett fyrir unga smiði og baðleikföng, dúkkur og litríka sokka í jólapakkann.
Heitt af pönnunni og gott í bollann
- Stella Rögn Sigurðardóttir kemur með skemmtilega hefð úr laufabrauðsgerð fjölskyldunnar. Afskurðurinn kallast ruður og þykir mörgum í fjölskyldunni einna bestur, nýsteiktur með salti og smjöri. Stella býður gestum að smakka ruðurnar bæði saltar og sætar, meðal annars með kanilsykri.
- Anna Björnsdóttir, fyrrverandi eigandi Önnu Konditori, steikir danskar eplaskífur á sérstakri pönnu og ber þær fram heitar með sultu og flórsykri. Kanilmöndlurnar hennar verða líka á sínum stað.
- Andrea Anna hjá Churros Wagon hefur tekið á móti gestum Jólaþorpsins frá 2018. Hún veltir stökkum churros upp úr kanilsykri og býður karamellu eða Nutella með. Brikk bakarí verður sömuleiðis með churros og nýsteiktar kleinur, jólabakkelsi og heitt súkkulaði.
- Yuyu færir japanska tehefð í jólabúning með heitum matcha- og hojicha-drykkjum og smákökum með sömu bragðtegundum. Japanskur tebúnaður fæst líka í húsinu. Daníel og Justyna hjá Kaffi Dropa laga espressó og fleiri kaffidrykki í kaffivagninum sínum. Þau nota haframjólk og kaffibaunir sem Te & Kaffi ristar hér á landi.
- Turf House mætir aftur með heitar franskar kartöflur og Iðnmark verður með Stjörnusnakk.
Kræsingar á jólaborðið og í pakkann
- Sauðfjárbúið kemur með kjöt beint frá býli, meðal annars kofabjúgu, tvíreykt hangikjöt og léttreykta lambahryggi. Kjötið reykja bændurnir við taðeld í kofa.
- Matarkompaní býður upp á villibráð og hátíðarkræsingar fyrir jólaboðin. Þórey Hafliðadóttir og Ívar Örn Hansen hjá Helvítis leika sér með íslenskt hráefni og óvæntar bragðsamsetningar, meðal annars í sultunum sínum. hafnarfjordur.is
- Íslensk hollusta hefur verið með okkur í Jólaþorpinu í að minnsta kosti fimmtán ár. Fyrirtækið vinnur úr íslenskum jurtum, berjum, salti og þara og býður meðal annars upp á saft, te, sultur og gjafapakkningar.

- Biohackers Corner og Blue Haus deila jólahúsi. Biohackers Corner kemur með skírt íslenskt smjör og smjörkökur. Gullinbrúnu mjólkurefnin sem verða eftir þegar smjörið er skírt fara í kökudeigið. Blue Haus leggur til hátíðarbakstur og heimagert sælgæti. hafnarfjordur.is
- Sykur og Salt býður upp á fylltar hafrakökur. Gestir geta valið á milli vanillu-, karamellukex- og sítrónufyllingar.
Hvenær er opið?
Jólaþorpið á Thorsplani er opið á föstudag kl. 17–20, laugardag kl. 13–20 og sunnudag kl. 13–18. Strandgatan milli Lækjargötu og Linnetstígs verður göngugata á meðan. Hjartasvellið og tívolíið við Venusarhúsið að Strandgötu 11 fylgja sama opnunartíma.
Fátt er fallegra en að rifja upp æskuna með bunu í jólalýstri hringekju. Komdu í Jólaþorpið.