Litlar hendur skreyta Jólaþorpið

Barnvænt sveitarfélag Fréttir Jólabærinn

Leikskólabörn streymdu á Thorsplan í morgun. Þau skreyttu jólatrén í Jólaþorpinu með handgerðu jólaskrauti. Já, þetta er falleg hefð hér í Hafnarfirði og gaman að fara með barninu sínu og skoða skrautið þess.

Gullfalleg hefð í Jólaþorpinu okkar

Leikskólabörn streymdu á Thorsplan í morgun. Þau skreyttu jólatrén í Jólaþorpinu með handgerðu jólaskrauti. Já, þetta er falleg hefð hér í Hafnarfirði og yndislegt að að yngstu íbúarnir taki þátt í að skapa jólastemninguna í hjarta Hafnarfjarðar.

Börnin höfðu undirbúið heimsóknina af kostgæfni í leikskólunum sínum. Þar föndruðu þau jólaskraut sem nú prýðir nú trén. Vandvirknin réði ríkjum þegar litlar hendur hengdu skrautið, merkt nöfnunum þeirra, á greinarnar.

Alls eru 19 leikskólar í Hafnarfirði, þar af 17 reknir af Hafnarfjarðarbæ og tveir sjálfstætt starfandi.

Hefð sem nær langt aftur

Þátttaka leikskólabarna í jólaundirbúningi bæjarins á sér langa sögu. Hana má reka í minnsta kosti aftur til ársins 2010. Hundruð hafnfirskra barna hafa lagt sitt af mörkum ár hvert til þessarar fallegu hefðar. Þau eru því ekki aðeins gestir í Jólaþorpinu heldur eiga sjálf þátt í að skapa þá einstöku jólastemningu sem þar ríkir.

Jólaþorpið á Thorsplani opnaði síðasta föstudag, 13. nóvember. Það er opið allar helgar fram að jólum.

Já, það er sko gaman að fara í Jólaþorpið og leyfa barninu sínu að sýna skrautið sitt og njóta þessarar hefðar með þeim

Opnunartími Jólaþorpsins:

  • Föstudaga kl. 17–20
  • Laugardaga kl. 13–20
  • Sunnudaga kl. 13–18
  • Þorláksmessu 23. desember kl. 13–21

Jólasveinar koma í heimsókn um helgar og fjölbreytt dagskrá lífgar upp á miðbæinn. Hjartasvellið á Ráðhústorgi og ljósadýrðin í Hellisgerði eru einnig hluti af jólastemningunni í Hafnarfirði.

Ábendingagátt