Alþjóðadagur barna er á föstudag – Blá hjörtu þann dag

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Hafnfirsk hjörtu verða blá á lit föstudaginn 20. nóvember í tilefni Alþjóðadags barna. Með því vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á réttindum barna og mikilvægi þess að þau fái að hafa áhrif á samfélagið sitt.

Blá hafnfirsk hjörtu á Alþjóðadagur barna

Hafnfirsk hjörtu verða blá á lit föstudaginn 20. nóvember í tilefni Alþjóðadags barna. Með því vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á réttindum barna og mikilvægi þess að þau fái að hafa áhrif á samfélagið sitt.

Ungmennaráðið, UNICEF á Íslandi og Jólaþorpið standa að viðburði í verslunarmiðstöðinni Firði milli kl. 17 og 20. Þar verður kveikt á bláu hjarta kl. 18. Einnig verða hjörtun við Strandgötu og í Hellisgerði lýst blá í tilefni dagsins.

Á viðburðinum verður jafnframt kynntur nýr QR-kóði sem gerir börnum kleift að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum um hvernig gera megi hafnfirskt samfélag enn betra fyrir þau.

Börn hafi rödd og áhrif

Hafnarfjarðarbær hefur í samstarfi við UNICEF unnið að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í grunnþjónustu sveitarfélagsins. Markmiðið er að tryggja að réttindi barna séu virt og að sjónarmið þeirra fái vægi í ákvörðunum sem þau varða. Já, Hafnarfjörður er barnvænt samfélag.

Alls starfa 24 ungmenni á grunn- og framhaldsskólaaldri í ungmennaráði Hafnarfjarðar. Ráðið er mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á málefni bæjarins.

Alþjóðadagur barna er árlega haldinn 20. nóvember og er tilefni til að minna á réttindi allra barna, hlusta á sjónarmið þeirra og efla þátttöku þeirra í samfélaginu.

Ábendingagátt