Bókaálfarnir Una og Snotra bíða barnanna á bókasafninu
Bókaálfarnir hvetja börn til að lesa, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og skapa sjálf. Þessar nýju álfavinkonur munu fylgja okkur í jólaamstrinu hér í Hafnarfirði. Þær verða í Jólaþorpinu og með eigin sýningu á bókasafninu okkar.
Bókaálfarnir verða á bókasafninu okkar
„Mig langaði að gera barnasýningu með fallegum boðskap, sem væri andsvar við neysluhyggjunni og umstanginu í kringum jólin,“ segir Rakel Björk Björnsdóttir sem ásamt vinkonu sinni Viktoríu Sigurðardóttur hefur skapað bókaálfana Unu og Snotru.
Bókaálfarnir hvetja börn til að lesa, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og skapa sjálf. Þessar nýju álfavinkonur munu fylgja okkur í jólaamstrinu hér í Hafnarfirði. Ekki aðeins stýra þær opnun Jólaþorpsins á föstudag heldur verður sýningin þeirra Bókaálfarnir Una og Snotra og leyndarmál hafsins sýnd í Friðrikssal á Bókasafni Hafnarfjarðar á aðventunni. Frumsýnt verður sunnudaginn 29. nóvember.
Rakel og Viktoría semja verkið, sviðsetja það og leika álfana tvo. Hugmyndin kviknaði hjá Rakel þegar hana langaði að skapa barnasýningu sem minnti á það sem mestu skiptir yfir hátíðarnar.
Hugmynd sem stækkaði og þróaðist
Upphaflega sá hún fyrir sér einleik með hefðbundnum jólaálfi, en smám saman varð jólaálfurinn að bókaálfi. Viktoría kom til liðs við verkefnið, teymið stækkaði og hugmyndin tók á sig nýja mynd.
„Þetta varð gæluverkefni sem varð stærra og stærra,“ segir Rakel. Hún sjái fyrir sér að bókaálfarnir fari víðar eftir að sýningunum á Bókasafninu lýkur enda nái viðfangsefnin lengra en til hátíðarinnar. Álfkonurnar sæki í íslenskar þjóðsögur og jólanóttin marki þáttaskil í lífi þeirra.
Bókaálfarnir koma þrisvar fram í Jólaþorpinu og fyrirhugaðar eru skólaheimsóknir. Höfundarnir vilja að persónurnar verði börnum fyrirmyndir og veki áhuga þeirra á lestri og sköpun. Rakel segir svo að sýningin í Friðrikssal muni einmitt skapa þeim reynslu sem nýtist til framtíðar.
Una og Snotra við sjávarsíðuna
En hverjar eru Una og Snotra? Jú þær búa í bókahelli við sjávarsíðuna. Þar safna þær sögum og hlutum sem berast með hafinu frá mannheimum. Náttúran og tengsl hennar við fólk og álfa eru mikilvægur hluti verksins.
„Hafið er þriðja persónan í verkinu og hefur mikið að segja,“ segir Rakel. Við Hafnfirðingar getum svo verið stolt af hafnfirsku tengingu verksins. Rakel býr í Hafnarfirði og hefur lengi sinnt sköpun í bænum. Álfatengingin og bókasafnið hafi því verið eðlilegur útgangspunktur.
„Mér fannst tilvalið að fá hafnfirskt samfélag með mér í lið. Það er fullt af fólki sem hjálpar til og við erum í góðu samstarfi við marga sem gera þetta kleift.“
Rakel og Viktoría kynntust í Matthildi
Samstarf þeirra Rakelar og Viktoríu hófst þegar þær léku báðar í söngleiknum Matthildi í Borgarleikhúsinu. Þær urðu góðar vinkonur og hafa síðan unnið saman að eigin verkefnum, meðal annars söngleiknum Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíói.
„Eftir að við urðum mæður breyttust áherslurnar og við gerum nú verk fyrir börnin með góðum boðskap.“
Frumsamin tónlist er eftir Rakel og Stefán Örn Gunnlaugsson, sem annast einnig upptökur og útsetningar. Viktoría leiðir búningahönnun með Klöru Sigurðardóttur, Stefaníu Adolfsdóttur og Freyju Björk Gunnarsdóttur. Sigurður Halldórsson vinnur sviðsmynd með höfundunum, Hildur Emilsdóttir sér um gervi og Konrad Groen um hljóð, ljós og tæknikeyrslu. Hugrún Margrét Óladóttir aðstoðar við sviðsetningu. Framleiðandi er ÞAU Company.
En hvenær er svo sýnt? Jú, fyrst 29. nóvember og 6., 13. og 20. desember, klukkan 13 og 15 alla dagana. Sýningin tekur um 40 mínútur og húsið opnar hálftíma áður. Börnin sitja fremst á sessum og fullorðnir í sætum fyrir aftan. Miðaverð er 3.900 krónur fyrir börn 15 ára og yngri og 4.300 krónur fyrir 16 ára og eldri.
Nú er að njóta saman á aðventunni í hjarta Hafnarfjarðar. Við hlökkum til að kynnast bókaálfunum ykkar Rakel og Viktoría.