Páll Óskar syngur jólin inn á þriðju helgi Jólaþorpsins

Fréttir Jólabærinn

Páll Óskar tekur lagið í Jólaþorpinu okkar í kvöld. Hann mætir með undirleikara á Thorsplan kl. 19 og syngur jólalög fyrir gesti og gangandi. Jólahúsin opna kl. 17 og því gefst góður tími til að rölta á milli þeirra, fá sér heitar eplaskífur hjá Önnu eða velja krans á útidyrnar fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.

Jólin í Hafnarfirði

  • Jólaþorpið er opið í dag, föstudag, kl. 17–20
  • á laugardag kl. 13–20
  • á sunnudag kl. 13–18
  • Strandgatan verður göngugata á meðan þorpið er opið.

Páll Óskar tekur lagið í Jólaþorpinu okkar í kvöld. Hann mætir með undirleikara á Thorsplan kl. 19 og syngur jólalög fyrir gesti og gangandi. Jólahúsin opna kl. 17 og því gefst góður tími til að rölta á milli þeirra, fá sér heitar eplaskífur hjá Önnu eða velja krans á útidyrnar fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.

Þorri og Þura, bókaálfarnir og sjálf Grýla

Þorri og Þura heimsækja Jólaþorpið á laugardag kl. 15.15. Þau sem vilja byrja daginn á rólegri nótum geta komið við á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 13 og hlýtt á leiklestur á Aðventu. Svo má bregða sér á skauta á Hjartasvellinu eða taka snúning í hringekjunni hjá Leiktækjum og Garðyrkju við Venusarhúsið.

Bókaálfarnir Una og Snotra taka á móti börnunum á bókasafninu á sunnudag með tveimur leiksýningum, kl. 13 og 15. Leikhópurinn Lotta syngur syrpu í Jólaþorpinu kl. 16 og mörg ykkar munuð rekast á sjálfa Grýlu á röltinu um bæinn.

  • Siggubær opnar dyrnar á sunnudag kl. 13–17. Þar má þiggja piparköku og hlýja sér á leiðinni milli Jólaþorpsins og Hellisgerðis.
  • Jólamarkaður Íshúss Hafnarfjarðar verður í Ægi á sama tíma.
  • Sorgargangan leggur af stað frá St. Jó kl. 17.30 og liggur leiðin í Hellisgerði.

Já, það er sko margt um að vera í Jólabænum okkar.

Hverjir verða í jólahúsunum?

  • Ásdís Arna Björnsdóttir lærði blómaskreytingar á þeim átta árum sem hún bjó í Svíþjóð. Nú er hún flutt heim í Hafnarfjörð og mætir með hurðar- og aðventukransa í Jólaþorpið.
  • Dagbjört Eilíf kemur með handmálaða bolla og vasa frá vinnustofu sinni á Selfossi
  • Heiða Rafnsdóttir verður með listprent af ævintýramyndum sínum.
  • Þóra Hvanndal hjá ICE Design by Thora handgerir skartgripi hér í bænum og notar í þá bæði íslenskt hraun og laxaroð.
  • Starfsfólk vinnustofu Áss styrktarfélags kemur með handverk sitt og hjá Fangaverki fást bakkar, bretti og jólaskraut sem fangar hafa unnið í fangelsum landsins.
  • BlueBerry mætir með jólavörur og opnar sitt glæsilega hús eins og síðustu helgar.
  • Tinna Pétursdóttir hjá Sixpensari.is verður með hatta, derhúfur og auðvitað sixpensara.
  • Dýralæknastofa Hafnarfjarðar verður með glaðninga fyrir ferfætlinga. Hundar geta fengið jólaglögg og brugðið sér í myndabás og sparislaufur og leikföng leynast í jólapakkanum fyrir hunda og ketti.
  • Sorgarmiðstöð tekur á móti gestum og kynnir starf sitt.
  • Sálarrannsóknarfélag Íslands verður í glerhúsinu á föstudag og sunnudag og býður meðal annars upp á stuttan tarotlestur.
  • Kjötkompaní verður í glerhúsinu á laugardag.

Eplaskífurog  nýsteiktar kleinur í Jólaþorpinu

  • Anna Björnsdóttir steikir danskar eplaskífur og ber þær fram heitar með sultu og flórsykri. Hún ristar líka möndlur upp úr kanilsykri.
  • Andrea Anna hjá Churros Wagon hefur glatt gesti Jólaþorpsins með stökkum churros frá árinu 2018
  • Daníel og Justyna laga kaffi og heitt súkkulaði í vagninum sínum, Kaffi Dropa.
  • Brikk bakarí mætir með nýsteiktar kleinur, Pretzel kofinn býður upp á sæta og salta bita með ídýfum og Víkinga Pylsur fylla pylsubrauð meðal annars með rifnu lambakjöti og béarnaisesósu.

Þau sem eru farin að huga að jólamatnum geta litið við hjá Sauðfjárbúinu og Matarkompaníi. Sauðfjárbúið kemur með kofabjúgu og taðreykt hangikjöt en Matarkompaní með grafna gæsabringu, önd og gæsaliframús.

  • Helvítis mætir með matarhandverk úr íslensku hráefni
  • Íslensk hollusta með sultur, saft og te.

Já, það er margt gott að finna í litlu jólahúsunum okkar þessa helgina og við hlökkum til að verja tímanum með ykkur öllum.

 

Ábendingagátt