43 hafa lokið leikskólakennaranámi í starfi hjá bænum
Hafnarfjarðarbær veitti í gær 43 leikskólakennurum viðurkenningu sem hafa á síðustu fimm árum lokið leikskólakennaranámi samhliða starfi hjá bænum.
Bærinn styður sitt fólk til náms
Hafnarfjarðarbær veitti í gær 43 leikskólakennurum viðurkenningu sem hafa á síðustu fimm árum lokið leikskólakennaranámi samhliða starfi hjá bænum. Kennararnir útskrifuðust frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri og starfa allir í leikskólum Hafnarfjarðar.
„43 leikskólakennarar. Það er sannarlega ástæða til að staldra við, gleðjast og vera stolt,“ sagði Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, þegar hún óskaði kennurunum til hamingju í Friðrikssal í nýja bókasafninu okkar í Firði.
Fjárfesting í framtíð barnanna
Jenný minnti á vinnuna sem liggur að baki hverju prófskírteini. Kennararnir hafi þurft að finna tíma fyrir lestur og verkefnaskil samhliða starfinu í leikskólanum og öðrum daglegum skyldum. Hafnarfjarðarbær hefur stutt starfsfólk á þessari leið með námssamningum.
„Námssamningarnir eru stuðningur sveitarfélagsins við þá vegferð. Prófið er ykkar áfangi. Og sameiginlega verkefnið fram undan er að skapa gott leikskólastarf fyrir börnin í Hafnarfirði,“ sagði hún. Einnig að bærinn horfði á heildarmyndina.
„Fyrir okkur er stuðningurinn fjárfesting í menntun, í leikskólastarfi og í framtíð barnanna okkar,“ sagði Jenný Dagbjört.
Hvert barn fær að njóta sín
Jenný benti á hvernig menntun kennaranna nýtist börnunum í leik og starfi. „Fagmennska leikskólakennara felst meðal annars í að skilja þroska og nám barna, sjá tækifærin í leiknum og skipuleggja námsumhverfi þar sem hvert barn fær að njóta sín,“ sagði hún.
Leikskólakennurum hefur fjölgað í Hafnarfirði á undanförnum árum. Jenný lagði áherslu á að hlúa áfram að kennurunum og skapa þeim aðstæður til að nýta þekkingu sína. Hún hvatti þá til að sækja um styrki úr menntasjóði bæjarins til að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd en bærinn auglýsir eftir umsóknum innan skamms.