Fjórar milljónir til að efla íslenskunotkun hér í Hafnarfirði

Fréttir

Tvö samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar fá samtals fjögurra milljóna króna styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála. Bæði verkefnin miða að því að skapa fleiri tækifæri til að æfa íslensku, efla öryggi í samskiptum og hvetja til aukinnar íslenskunotkunar í daglegu lífi.

Eflum íslenskuna í firðinum fagra

Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Samfélags fyrir öll, GETU og Gefum íslensku séns fengu á dögunum samtals fjögurra milljón króna styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

Verkefnin nálgast íslenskunotkun með ólíkum hætti. Annað nýtir leiklist og skapandi starf til að efla tungumálafærni. Hitt hvetur Hafnfirðinga til að nota íslensku í hversdagslegum samskiptum, meðal annars í verslunum, á kaffihúsum og í þjónustu bæjarins.

Sköpunin notuð

Verkefnið Orð verða að verki er unnið í samstarfi Hafnarfjarðarbæjar við Samfélag fyrir öll og hlaut það tveggja milljóna króna styrk.

Íslenskuæfingar, leiklist og skapandi starf fléttast saman í verkefninu. Þátttakendur fá tækifæri til að æfa íslensku í gegnum leik, samtöl og frásagnir í umhverfi þar sem áhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust og öryggi í notkun tungumálsins.

Gert er ráð fyrir vikulegum vinnustofum og tveimur sýningum þar sem afrakstur starfsins verður kynntur. Verkefnið hefst árið 2027.

Notum íslensku í daglegu lífi

Æfum íslensku saman er samstarfsverkefni GETU, Hafnarfjarðarbæjar og Gefum íslensku séns og hlaut einnig tveggja milljóna króna styrk.

Um er að ræða vitundar- og markaðsherferð sem hvetur til aukinnar íslenskunotkunar í daglegum samskiptum. Áherslan verður á staði þar sem fólk hittist og á í samskiptum, svo sem í þjónustuveri, á bókasafni, söfnum, kaffihúsum og í verslunum.

Herferðinni er ætlað að hvetja bæði þau sem eru að læra íslensku til að nota tungumálið og íslenskumælandi fólk til að gefa öðrum tækifæri til að æfa sig í daglegum samskiptum.

Fleiri tækifæri til að tala íslensku

Verkefnin tvö eiga það sameiginlegt að færa íslenskuæfingar inn í daglegt líf og samfélagið í Hafnarfirði. Með þeim er lögð áhersla á að tungumál lærist ekki aðeins í kennslustofum heldur einnig í samskiptum, samveru og virkri þátttöku í samfélaginu.

Styrkirnir voru afhentir miðvikudaginn 11. nóvember á viðburðinum Lykill að samfélaginu á vegum innflytjendaráðs. Alls hlutu 26 verkefni styrki úr þessum þróunarsjóði, samtals 68,58 milljónir króna. Áhersla sjóðsins í ár var meðal annars á verkefni sem stuðla að virkri notkun íslensku í daglegu lífi.

Við erum afar þakklát fyrir styrkina sem munu svo sannarlega nýtast til góðs.

Ábendingagátt