Fjölmenni við opnun tveggja sýninga í Hafnarborg

Fréttir

Fjöldi fólks lagði mætti í Hafnarborg fimmtudagskvöldið 12. nóvember þegar sýningarnar Vatnsins streymi eftir Beili Liu og Hugrenningar eftir Styrmi Örn Guðmundsson voru opnaðar. Gestir nutu listarinnar, spjölluðu saman og fylgdust meðal annars með gjörningi á línuskautum sem nú er hluti listasýningarinnar.

Nýjar sýningar í Hafnarborg

Mörg mættu í Hafnarborg fimmtudagskvöldið 12. nóvember þegar sýningarnar Vatnsins streymi eftir Beili Liu og Hugrenningar eftir Styrmi Örn Guðmundsson voru opnaðar.

Listaverk afhjúpuð á línuskautum

Sjá má stórar og áhrifamiklar teikningar Styrmis Arnar á sýningunni Hugrenningar sem mynda innsetningu í sýningarsalnum. Verkin hanga úr lofti og skapa fjölbreyttan myndheim sem gestir geta gengið um. Þeir fá þarna tækifæri til að skoða verkið frá ólíkum sjónarhornum.

Við opnunina bauð listamaðurinn upp á einstakan gjörning. Hann renndi sér fimlega um sýningarsalinn á línuskautum og afhjúpaði verkin smám saman. Gestir fylgdust áhugasamir með og fönguðu margir augnablikið á mynd. Gjörningurinn lifir áfram á sýningunni í formi vídeóverks.

Samband manns og náttúru

Beili Liu kannar samband okkar við náttúruna og áhrif mannsins á umhverfið í verkinu Vatnsins streymi. Þar mætast meðal annars litríkar innsetningar úr fjölbreyttum efniviði og fjöldi smárra blárra myndverka sem saman mynda áhrifamikla heild.

Fínlegir þræðir hanga úr lofti og bera marglit form sem virðast svífa í rýminu. Gestir gengu á milli verkanna, skoðuðu smáatriðin og ræddu saman um sýninguna. Innsetningin skapar sérstaka upplifun þar sem áhorfandinn verður hluti af rýminu og verkinu.

Opið öllum fram í febrúar

Báðar sýningarnar standa yfir í Hafnarborg til 21. febrúar 2027. Safnið þakkar á Facebook-síðu sinni öllum þeim fjölmörgu gestum sem fögnuðu opnuninni. Við hvetjum Hafnfirðinga og aðra listunnendur til að leggja leið sína í Hafnarborg. Aðgangur að safninu er ókeypis.

Ljósmyndir: Kristín S. Pétursdóttir.

 

Ábendingagátt