Ásbjörn pakkaði jólagjöfum fyrir Mæðrastyrksnefnd

Fréttir

Þrjár kynslóðir tengdar Lionsklúbbnum Ásbirni settust niður saman og pökkuðu inn nýjum fatnaði frá Icewear sem Mæðrastyrksnefnd fær til úthlutunar fyrir jólin. Um 400 hafa óskað eftir hjálp þessi jól.

Áralöng hefð fyrir Mæðrastyrksnefnd

Félagsmenn, börn þeirra og barnabörn í Lionsklúbbnum Ásbirni tóku til hendinni á jólaskemmtun klúbbsins í Kænunni á fimmtudagskvöld. Þrjár kynslóðir settust niður saman og pökkuðu inn nýjum fatnaði frá Icewear sem Mæðrastyrksnefnd fær til úthlutunar fyrir jólin. Þegar búið var að ganga frá hátt í 300 pökkum var spilað bingó.

Já, þetta er árleg hefð sem hefur fest sig í sessi. Sum þeirra sem mættu hafa komið í Kænuna til að merkja gjafir eða pakka þeim inn í þrjátíu ár.

Skúli Gunnar Böðvarsson, einn stofnfélaga Lionsklúbbsins Ásbjarnar, er fljótur til svars þegar hann er spurður hvort starfið sé gefandi. „Já, þetta er gefandi, guð minn almáttugur,“ segir hann og brosir.

Um 400 umsóknir um aðstoð

Petrea Ómarsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, segir framlag skipta miklu máli.

„Þetta er guðsgjöf.“ Framtakið gefi foreldrum tækifæri til að gefa börnunum sínum ný útivistaföt í jólagjöf. Hún segir að hópur fyrirtækja hafi þegar svarað kalli Mæðrastyrksnefndar fyrir þessi jól. Úthlutunin verði 12.–14. desember frá Einihellu 1b, húsnæði fasteignafélagsins Kaldalóns. Umsóknirnar séu um 400.

„Við sjáum að háir vextir höggva í heimilin. Fólk er að draga seglin saman,“ segir Petrea. Fimm séu í stjórn Mæðrastyrksnefndar. Hún og gjaldkerinn séu á síðasta ári sínu. „Ég hvet konur sem vilja sitja í stjórninni að gefa sig fram.“

Kótilettukvöld sem skiptir máli

Félagar í Ásbirni hafa um árabil fært Mæðrastyrksnefnd nýjan fatnað fyrir jólin. Fyrir um fjórum árum tóku þeir upp á því að halda kótilettukvöld til að fjármagna gjöfina en áður seldu þeir jóladagatöl. Að þessu sinni kaupir klúbburinn fatnað fyrir um 1,3 milljónir króna hjá Icewear sem styður verkefnið með veglegum hætti, bæði umgjörð og afslætti.

„Skiptimiði fylgir hverri flík svo sá sem fær hana geti valið sér stærð og snið við hæfi,“ segir Skúli. „Fólk getur því valið þann stíl og stærð sem hentar.“

Lionsklúbburinn Ásbjörn hefur látið gott af sér leiða í Hafnarfirði frá árinu 1973. Margir íbúar Hrafnistu þekkja félagana af bingókvöldunum sem þeir hafa haldið með Lionsklúbbnum Kaldá fjórum sinnum á ári. Börnin í einhverfudeild Hraunvallaskóla fengu líka heimsókn frá Ásbirni í haust. Félagarnir færðu þeim stóran gagnvirkan skjá, tvö trampólín og leikföng sem nýtast í skólastarfinu.

Já, Ásbjörn leggur svo sannarlega samfélaginu lið eins og svo mörg önnur góð félög hér í bæ.

Ábendingagátt