Mánudagsföndur!
Föndurstund alla mánudaga á bókasafninu þínu! Allur efniviður á staðnum, allir í góðu skapi, og endalaust gaman. Komdu og vertu…
Sögulegir búningar, cosplay, brynjugerð, propsmaking – eða bara að hanna og skapa þinn eigin fatnað – við erum saman komin til að gera eitthvað geggjað.
Hefur þig alltaf langað í geggjaðan búning? Horfir á öll Bernadette Banner vídjóin á jútúb og fylgir öllum með #cosplay á öllum miðlum?
Bridgerton-kjólar? Eða fílarðu Game of Thrones?
Er EVAfoam ógnvekjandi? Eru saumavélar á hæsta tindi ómöguleikans? Rugl. Það geta allir gert galla/kit.
Við hittumst á þriðjudögum, vinnum, spjöllum, skemmtum okkur. Það er leiðbeinandi á staðnum sem er klár í að finna út úr hlutunum, og við deilum þekkingu og reynslu, – því allir byrja einhvers staðar og allir eiga skilið skapa.
Saumavélar og allt sem þarf á staðnum. Aðstoð við snið og almennileg borð til efnisskurðar (bless stofugólf!), hamingja og félagsskapur. Athugið að þátttakendur koma með eigið efni og hugmynd. Smiðjan hentar ekki fyrir ung börn.
Smiðjan er hluti af viðburðaröð í undirbúningi fyrir Heima og Himingeima 2026.
Föndurstund alla mánudaga á bókasafninu þínu! Allur efniviður á staðnum, allir í góðu skapi, og endalaust gaman. Komdu og vertu…
Sögulegir búningar, cosplay, brynjugerð, propsmaking – eða bara að hanna og skapa þinn eigin fatnað – við erum saman komin…
Ekki bara stafróf! Á fyrsta degi hörpu er um að gera að spá í hvað framtíðin ber í skauti sér.…
Sóleyjar vaxa í varpa og vorsól skín. Velkomin vertu Harpa með vorblóm þín. Við opnum og brosum mót sól…
Nú skal hildi há! Hressir kappar frá Víkingaáhugamannafélaginu Rimmugýgi ætla að kynna skylmingarnar frá þjóðveldisöld. Þetta jaðarsport hefur náð góðri…
Föndurstund alla mánudaga á bókasafninu þínu! Allur efniviður á staðnum, allir í góðu skapi, og endalaust gaman. Komdu og vertu…
Sögulegir búningar, cosplay, brynjugerð, propsmaking – eða bara að hanna og skapa þinn eigin fatnað – við erum saman komin…
Megi mátturinn vera með ykkur öllum í maímánuði! Sem áður fögnum við Stjörnustríðsdeginum á þeim laugardegi sem næst fellur fjórða…
Föndurstund alla mánudaga á bókasafninu þínu! Allur efniviður á staðnum, allir í góðu skapi, og endalaust gaman. Komdu og vertu…
Bókaklúbburinn Síðan er samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar og Ungmennahússins Hreiðursins. Síðan hefur þá sérstöðu frá öðrum bókaklúbbum að í stað…