Velkomin
til Hafnarfjarðar

Fjölbreytt samfélag þar sem náttúra, saga og daglegt líf mætast.

+

Íbúar

+

Þjónustur

Stofnár
Velkomin heim!
Nýtt heimili, nýtt hverfi, nýjar götur og ný andlit. Við vitum að það getur tekið tíma að koma sér fyrir og viljum við auðvelda fyrstu skrefin. Hér býr fólk sem leggur sig fram við að skapa umhverfi þar sem öllum líður vel – hvort sem þú ert nýflutt/ur, að koma aftur heim eða að byrja nýtt ævintýri.
Á þessari síðu finnur þú gagnlegar upplýsingar sem hjálpa þér að koma þér fyrir, kynnast þjónustunni og nýta það besta sem bærinn hefur upp á að bjóða, allt á einum stað.
Hvort sem þú ert að leita að leikskóla, útivistarsvæðum, bókasafni, tómstundum, eða einfaldlega að vita hvar þjónustuverið er, þá er þetta rétti staðurinn til að byrja.
Við hlökkum til að lifa og njóta með þér!

Þjónustuver

Þjónustuver Hafnarfjarðar er fyrsta viðkomustaður fyrir allar spurningar um þjónustu bæjarins. Við aðstoðum þig með upplýsingar um skóla, íþróttir, menningu, velferð og allt sem tengist lífinu í bænum. Þú getur komið til okkar, hringt í 585-5500 eða sent tölvupóst. Við erum hér til að hjálpa.
Strandgata 6
Mán - fim
08:00 -16:00
Föstudaga
08:00 -16:00

Velferð

Í Hafnarfirði leggjum við áherslu á samfélag þar sem allir finna stuðning og öryggi. Bærinn veitir fjölbreytta félagslega þjónustu fyrir börn, fjölskyldur, fatlað fólk og eldri borgara og vinnur stöðugt að því að þjónustan sé nálæg, aðgengileg og taki mið af þörfum fjölbreytts samfélags.

Skóli og frístund

Í Hafnarfirði búa börn við öruggt og lifandi umhverfi til að leika, læra og vaxa. Skóla- og frístundastarf er fjölbreytt og byggir á jafnrétti, vellíðan, sköpun og ábyrgri þátttöku. Bærinn leggur áherslu á að bjóða öllum tækifæri til að finna sín áhugamál og nýta frítímann á uppbyggilegan hátt.

Íþróttir og útivera

Í Hafnarfirði er stutt í náttúruna og í hreyfingu. Bærinn státar af fjölbreyttum íþróttafélögum, sundlaugum, leikvöllum og gönguleiðum. Hér er auðvelt að finna sína leið til að hreyfa sig, vera úti og njóta nærumhverfisins. Hvort sem þú vilt hlaupa, ganga, synda, sparka, klifra eða bara rölta með kaffibolla.

Menning og listir

Hafnarfjörður er lifandi menningarbær þar sem listir og skapandi starf blómstra. Í bænum er fjölbreytt menningardagskrá allt árið og menningarstofnanir skapa rými fyrir list, læsi og sögu. Árlegir viðburðir setja svip á bæinn og gera menningu að hluta af daglegu lífi, þar sem íbúar geta notið, uppgötvað og tekið þátt.

Farsæld barna

Hér er umhverfi sem styður við heilbrigða þroska, öryggi og gleði barnanna. Frístundastarf, skólar og fjölskylduþjónusta vinna saman að því að tryggja að hvert barn fái tækifæri til að vaxa, læra og njóta sín. Við trúum því að þegar börn blómstra, þá blómstrar samfélagið með þeim.
Ábendingagátt