Brúarsmiðir eru menningarmiðlarar sem veita hagnýta aðstoð við skráningar fyrir fjölskyldur í Hafnarfirði. Brúarsmiðir verða til staðar í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6, miðvikudaginn 6. maí, kl. 8:30–10:00 og 14:00–15:30, þar sem boðin er aðstoð á mörgum tungumálum: ensku, spænsku, arabísku og pólsku.

Aðstoðin snýr að skráningum í skóla, frístund, tómstundir og sumarfrístund. Ef þú þarft hjálp við skráningarkerfi eða fylla út umsóknir eru Brúarsmiðir til staðar til að leiðbeina þér skref fyrir skref.

Öll eru velkomin að koma við eða hafa samband með tölvupósti á bru@hafnarfjordur.is.

Ábendingagátt