Hafnarfjörður er fjölskyldu- og barnvænt samfélag þar sem velsæld íbúa nýtur forgangs. Góð líðan byggir á heilbrigðu umhverfi, jafnrétti, sjálfstæði, forvörnum og uppbyggilegu líferni allra aldurshópa. Íbúar eiga að njóta tækifæra til þess að þroska sig og rækta andlega og félagslega heilsu.
Áherslur 2022 – 2025
- Skilgreina Hafnarfjörð sem barnvænt sveitarfélag þar sem viðmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru notuð í þjónustu við börn og ungmenni
- Efla fjölbreyttar forvarnir til að stuðla að vellíðan íbúa á öllum aldri.
- Jafna stöðu ólíkra hópa innan bæjarfélagsins.
- Hlúa að andlegri líðan og velferð eldri borgara.
- Tryggja, í samstarfi við ríkið, gott aðgengi allra íbúa að heilsugæslu innan bæjarins.