Hátíð í Hellisgerði – sunnudaginn 16. ágúst 🌿🧚‍♀️✨

Komdu og njóttu dagsins í Hellisgerði þar sem álfar, ævintýri og gleði taka yfir garðinn! Álfavinir okkar Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur verða á staðnum ásamt vinum okkar, Þorra og Þuru – þér er boðið! 💫

🌈 Fjölskylduskemmtun um allan garð – frá kl. 13:00 til 16:00 – þar sem börn og börn í anda fá að leika sér, hlæja og dreyma.

Á dagskrá meðal annars:
🎭 Andlitsmálning
🎪 Sirkússmiðja með Sirkús Ananas í lautinni við Skúlaskeið
💃 Dansálfar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar verða á vappi
🫧 Sápukúlur, sykurpúðar, útileikir og óvænt ævintýri!

🕐 Sviðsdagskrá frá kl. 13:00

👉 Íþróttaálfurinn
👉 Þorri og Þura
👉 Dansálfar Listdansskóla Hafnarfjarðar
👉 Benedikt búálfur

🌟 Taktu daginn frá, pakkaðu gleðinni með þér og komdu með í ævintýri í Hellisgerði!

Hjartanlega velkomin 💚🎶

Ábendingagátt