Keyrt var á brunahana í Setbergi og þar af leiðandi þurfti að loka fyrir vatn að honum. Það hefur skapað truflanir á afhendingu vatns víða um bæinn. Áhrifin vara á meðan á viðgerð stendur.
Vatnstruflanir í Hafnarfirði
Keyrt var á brunahana í Setbergi nú í morgun og þar af leiðandi þarf að loka fyrir vatn að honum. Starfsmenn vatnsveitunnar vinna hörðum höndum að viðgerð. Búast má við einhverjum truflunum á meðan á viðgerðinni stendur.
Áhrifin vara víða um bæ og hafa fundist í Börðum, á Holtinu, í Skarshlíð og á Völlunum.
Uppfært kl. 12.07 = Viðgerð lokið