Bara tala
Eflum íslenskuna saman!
Bara tala áskorunin
Eflum íslenskuna saman í leikskólum Hafnarfjarðar!
Bara tala áskorunin er ætluð starfsfólki leikskóla Hafnarfjarðar sem hefur annað móðurmál en íslensku. Markmið verkefnisins er að styðja starfsfólk í að efla íslenskukunnáttu sína, auka öryggi í samskiptum og skapa fleiri tækifæri til að nota íslensku í daglegu starfi.
Þátttakendur fá ókeypis aðgang að íslenskunámsforritinu Bara tala til að læra á sínum eigin hraða og á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Með reglulegri notkun geta þátttakendur byggt upp orðaforða, aukið færni í íslensku og fylgst með eigin framförum.
Áskorunin mun standa yfir allan septembermánuð. Þátttakendur ljúka æfingum í snjallforritinu og safna stigum fyrir þátttökuna. Að tímabilinu loknu verður haldinn lokaviðburður þar sem allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Jafnframt verða verðlaun veitt þeim sem hafa safnað flestum stigum í áskoruninni.
Við hvetjum allt starfsfólk til þess að taka þátt í áskoruninni og leggja sitt af mörkum til að efla íslenskuna saman í leikskólum Hafnarfjarðar.
Fyrirspurnir:
Hildur Ýr Jónsdóttir
Verkefnastjóri fjölmenningar
hilduryr@hafnarfjordur.is
Skráning
Bara tala áskorunin