Frístundamessa Hafnarfjarðar 29. ágúst 2026

Þann 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og kynna starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum þeirra, í íþróttahúsinu á Strandgötu.

Frístundamessa í Hafnarfirði

Alls starfa 28 íþróttafélög í Hafnarfirði. Innan þeirra er hægt að finna fjöldan allan af íþróttagreinum. Mörg þeirra verða á frístundamessunni 29. ágúst og bjóða börnum uppá kynningar og prufur.

Frístundamessan verður full af lífi og fá börn að spreyta sig í alls kyns íþróttagreinum sem þau kunna að hafa áhuga á. Þar að auki verða tómstundamiðstöðvarar okkar á staðnum og kynna starfsemi sína, auk tómstundafélaga. Hægt verður að spjalla um frístundastyrkinn.

Brúarsmiðirnir verða á svæðinu til að tryggja að fólk með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn geti einnig tekið þátt.

Tilgangur frístundamessunar er að aðstoða börn í sveitarfélaginu við að finna sér íþrótt eða tómstund sem hæfir þeim. Með það fjölbreytta starf sem er í boði hjá okkur í Heilsubænum Hafnarfirði ættu allir sannarlega að geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk. Við viljum því bjóða börnunum að kynna sér framboðið og finna starf sem þau hafa áhuga á.

  • Frístundamessan hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 14:00

Við vonumst til að sjá sem flesta á svæðinu.

Hverjir verða á staðnum?

  1. Badmintonfélag Hafnarfjarðar

    Badminton er hröð og skemmtileg íþrótt sem hentar fólki á öllum aldri. Hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar er hægt að æfa á eigin forsendum, hvort sem markmiðið er að keppa eða njóta góðrar hreyfingar. Rúmlega 700 manns æfa hjá félaginu. Upplýsingar eru á heimasíðu félagsins en óska þarf eftir prufuæfingu með tölvupósti á bh@bhbadminton.is. Félagið lánar spaða og fjaðrabolta.

  2. Borðtennisdeild Badmintonfélags Hafnarfjarðar 

    Borðtennis er skemmtileg og hröð íþrótt sem hægt er að stunda sér til ánægju eða með keppni að markmiði. Um 100 manns á öllum aldri æfa borðtennis hjá BH. Upplýsingar um æfingatíma og skráningu eru á badmintonfelag.is. Óska þarf eftir prufuæfingu á bh@bhbadminton.is. Félagið lánar spaða og kúlur og iðkendur þurfa aðeins þægileg íþróttaföt og innanhússkó til að byrja.

  3. Bogfimifélagið Hrói Höttur

    Bogfimi er fjölbreytt íþrótt sem hentar breiðum hópi iðkenda. Hægt er að prófa mismunandi gerðir boga, æfa sér til ánægju eða stefna á þátttöku í mótum og keppnum. Um 90 iðkendur eru hjá Bogfimifélaginu Hróa Hetti. Félagið útvegar byrjendum allan nauðsynlegan búnað. Skráning fer fram á bfhroihottur.is.

  4. Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar

    Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar býður upp á samkvæmisdansa, barnadansa, salsa, bachata og Zumba. Yngstu iðkendurnir eru tveggja til þriggja ára og æfa þeir án endurgjalds fram að jólum. Um 300 nemendur stunda nám hjá félaginu ár hvert. Kennsla hefst 5. september og lýkur með jólaballi og nemendasýningu. Skráning fer fram í Abler eða með tölvupósti á dihdans@simnet.is. Nánari upplýsingar eru á dih.is.

  5. Gaflóskólinn

    Í Gaflóskólanum fá börn og ungmenni að kynnast leiklist og spuna í skapandi og skemmtilegu umhverfi. Áhersla er lögð á gleði og þjálfun í grunntækni leiklistar fremur en lokaútkomuna. Um 120 nemendur stunda nám við skólann. Skráning fer fram á gaflaraleikhusid.is og eini nauðsynlegi búnaðurinn er góða skapið.

  6. Hestamannafélagið Sörli 

    Í Félagshúsi Sörla geta börn og ungmenni á aldrinum 9–18 ára kynnst ævintýraheimi íslenska hestsins án þess að eiga eigið hross. Þau læra að umgangast hesta og fara í reiðtúra en einnig er hægt að leigja pláss fyrir eigið hross. Rúmlega þúsund félagsmenn stunda hestaíþróttir á félagssvæði Sörla. Nánari upplýsingar fádst heimasíðu Sörla. Iðkendur þurfa eigin hjálm og skó með hæl og mælt er með hlífðarbrynju.

  7. Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar

    Hnefaleikar efla meðal annars sjálfstraust, aga, styrk, þol, hraða og samhæfingu. Æfingarnar hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar eru fjölbreyttar, krefjandi og skemmtilegar og um 120 iðkendur æfa hjá félaginu. Nánar má lesa um boxið á heimasíðu félagsins. Skráning fer fram í Abler en einnig má hafa samband í gegnum Facebook eða Instagram eða líta við á Suðurhellu 5. Nýskráðir iðkendur fá boxhanska og sippuband.

  8. Listdansskóli Hafnarfjarðar

    Listdansskóli Hafnarfjarðar býður upp á fjölbreytt dansnám, meðal annars jazz, commercial, söngleikjadans, ballett, nútímadans og silki. Áhersla er lögð á gott félagslíf og nemendur geta tekið þátt í keppnum, sýningum, viðburðum og æfingaferðum. Um 350 iðkendur eru við skólann, sem vann tvo heimsmeistaratitla á Dance World Cup í Dublin síðastliðið sumar. Upplýsingar eru á listdansskoli.is og listdansskoli@listdansskoli.is.

  9. Sambo 80

    Sambo er sjálfsvarnar- og glímuíþrótt fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Á æfingum er lögð áhersla á aga, styrk, úthald, liðleika og samhæfingu undir leiðsögn þjálfara með mikla reynslu og alþjóðleg réttindi. Um 45 iðkendur æfa hjá Sambo 80. Hægt er að bóka prufutíma með tölvupósti á helga@1312.is. Til að byrja nægja íþróttabuxur og stuttermabolur.

  10. Skátafélagið Hraunbúar

    Skátastarf er ævintýralegt og fjölbreytt starf sem er opið öllum. Börn og ungmenni læra af reynslunni, vinna saman og takast á við spennandi verkefni úti í náttúrunni. Þannig eflast meðal annars sjálfstraust, sjálfstæði, ábyrgð og leiðtogafærni. Um 190 iðkendur eru hjá Hraunbúum. Skráning fer fram í Abler og ekki er þörf á sérstökum búnaði til að byrja, aðeins hlýjum fötum sem henta veðri.

  11. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar

    Tónlistarskóli Hafnarfjarðar býður upp á fjölbreytt tónlistarnám fyrir um 600 nemendur. Hægt er að læra á fjölmörg hljóðfæri, stunda hefðbundið eða rytmískt tónlistarnám og taka þátt í öflugu hljómsveitastarfi. Nemendur geta leigt flest hljóðfæri hjá skólanum, með ákveðnum undantekningum. Upplýsingar um nám og umsóknir eru á tonhaf.is og í síma 555 2704. 

  12. Fimleikafélagið Björk

    Fimleikafélagið Björk er fjölgreinafélag sem býður upp á fimleika, klifur og taekwondo. Innan fimleikadeildarinnar eru meðal annars áhaldafimleikar, hópfimleikar, parkour, fullorðinsfimleikar og hópar fyrir yngstu iðkendurna. Skráning og upplýsingar eru á vefsíðunni: fbjork.is

  13. Siglingaklúbburinn Þytur

    Á siglingaæfingum læra börn og ungmenni að stýra bát, beita seglum og lesa í veður og öldugang. Siglingar sameina náttúruþekkingu, tækni, úthald og öryggi. Klúbburinn útvegar nauðsynlegan siglingabúnað fyrir byrjendur. Skráning er í gegnum Abler.

  14. Sundfélag Hafnarfjarðar

    Sundfélag Hafnarfjarðar býður upp á sund fyrir börn frá þriggja ára aldri, unglinga og fullorðna. Hægt er að læra að synda, bæta sundfærnina eða æfa með keppni að markmiði í sundlaugum Hafnarfjarðar. Upplýsingar og skráning eru á vefsíðu félagsins: sh.is.

  15. Knattspyrnudeild Hauka

    Knattspyrnudeild Hauka leggur áherslu á metnað, fagmennsku og sterka liðsheild í jákvæðu og öruggu umhverfi. Markmiðið er að allir fái tækifæri til að þroskast og njóta knattspyrnunnar, innan vallar sem utan. Nýir iðkendur geta komið og prófað æfingu. Skráning er í gegnum Abler. 

  16. Golfklúbburinn Keilir

    Golf er fjölskylduvæn íþrótt sem sameinar tækni, einbeitingu, hreyfingu og útivist. Íþróttin eflir sjálfsaga og herkænsku og býður jafnframt upp á góðan félagsskap. Byrjendur geta fengið lánaðar golfkylfur hjá klúbbnum. Skráning fer fram á keilir.is.

  17. Karatefélag Hauka

    Karate eflir aga, snerpu og íþróttamennsku. Byrjendur þurfa aðeins léttan íþróttafatnað en geta síðar æft í karategalla. Nánari upplýsingar eru á kdh.is. Skráning er í gegnum Abler.  

  18. Frjálsíþróttadeild FH

    Frjálsíþróttir byggja á hlaupum, stökkum og köstum og leggja góðan grunn að almennri hreyfifærni. Æfingarnar efla meðal annars styrk, snerpu, samhæfingu og úthald. Allir eru velkomnir að prófa æfingu í Kaplakrika og upplýsingar eru á fh.is/frjalsar.

  19. Brettafélag Hafnarfjarðar

    Hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar geta börn og ungmenni stundað hjólabretti, snjóbretti og BMX og fengið að njóta sín á eigin forsendum. Um 350 iðkendur eru hjá félaginu. Hægt er að fá lánaðan búnað á hjólabretta- og BMX-æfingum en iðkendur þurfa eigin búnað á snjóbrettaæfingum. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu brettafélagsins og Instagram-síðu félagsins.

English

Leisure and Sports Fair in Hafnarfjörður

On August 29, sports and leisure clubs in Hafnarfjörður will gather at the sports hall on Strandgata to showcase their activities to children and their parents. The aim of the fair is to help children find a sport or leisure activity that suits them.

There are 38 sports clubs operating in Hafnarfjörður, offering a wide variety of sports disciplines. Many of these can be explored at the fair, where clubs offer both introductory presentations and trial sessions.

Representatives from „Brúarsmiðirnir“ (The Bridge Builders) will be on-site to ensure that people from diverse linguistic and cultural backgrounds can also participate.

The fair runs from 10:00 to 14:00.

We look forward to seeing you there.

Español

Feria de deportes y ocio en Hafnarfjörður

El 29 de agosto, los clubes deportivos y de ocio de Hafnarfjörður se reunirán en el pabellón deportivo de Strandgata para dar a conocer sus actividades a los niños y a sus padres. El objetivo de la feria es ayudar a los niños a encontrar un deporte o una actividad de ocio que se adapte a sus gustos.

En Hafnarfjörður operan 38 clubes deportivos que ofrecen una amplia variedad de disciplinas. Muchas de ellas podrán conocerse en la feria, donde los clubes ofrecerán tanto presentaciones introductorias como sesiones de prueba.

Habrá representantes de «Brúarsmiðirnir» (Los Constructores de Puentes) para garantizar que también puedan participar personas de diversos orígenes lingüísticos y culturales.

La feria tendrá lugar de 10:00 a 14:00 horas.

Esperamos verles allí.

Polski

Targi Zajęć Sportowych i Pozalekcyjnych w Hafnarfjörður 

W sobotę 29 sierpnia w hali sportowej przy ulicy Strandgata odbędą się Targi Zajęć Sportowych i Pozalekcyjnych. Kluby i organizatorzy z Hafnarfjörður przedstawią dzieciom i rodzicom swoją ofertę. To świetna okazja, aby dzieci poznały różne możliwości i znalazły zajęcia dla siebie.

W Hafnarfjörður działa 38 klubów oferujących najróżniejsze dyscypliny sportowe. Podczas targów będzie można poznać wiele z nich, obejrzeć prezentacje, a także wziąć udział w zajęciach próbnych. 

Na miejscu będą obecni asystenci międzykulturowi, czyli Brúarsmiðir, którzy pomogą osobom z różnych środowisk językowych i kulturowych w pełni skorzystać z wydarzenia. 

Targi odbędą się w godzinach 10:00–14:00. 

Serdecznie zapraszamy!
 

العربية

معرض ترفيهي في Hafnarfjörður
يوجد في هافنارفيوردور 38 ناديًا رياضيًا، تُقدم مجموعة واسعة من الرياضات. سيشارك العديد منها في معرض الأنشطة الترفيهية يوم 29 أغسطس، حيث سيُقدم عروضًا تعريفية وتجارب للأطفال. سيكون المعرض حافلًا بالفعاليات، وسيُتيح للأطفال فرصة تجربة مختلف أنواع الرياضات التي قد تثير اهتمامهم. بالإضافة إلى ذلك، سيتواجد مديرو مراكزنا الترفيهية لتقديم أنشطتهم ونواديهم. كما ستُتاح فرصة التحدث عن منحة الأنشطة الترفيهية. سيتواجد فريق منسقي الأنشطة لضمان مشاركة الجميع من مختلف الخلفيات اللغوية والثقافية. يهدف معرض الأنشطة الترفيهية إلى مساعدة أطفال البلدية في إيجاد رياضة أو نشاط ترفيهي يُناسبهم. مع تنوع الأنشطة المتاحة في مركز هافنارفيوردور الصحي، سيجد كل طفل ما يُناسب ذوقه. لذا، ندعو الأطفال للاطلاع على العروض المتاحة واختيار ما يُناسبهم. يبدأ معرض الترفيه الساعة 10:00 ويستمر حتى الساعة 14:00 نتمنى أن نرى أكبر عدد ممكن من الناس في المنطقة.