Hamingjudagar í Hafnarfirði 2026
Hamingjudagar í Hafnarfirði Sjóbað, jóga nidra, söngpartý og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í…
Miðvikudaginn 23. september kl. 19:00 – Gengið frá Víðistaðakirkju
Komdu með í HamingjuGöngu um Víðistaðasvæðið með Jónatani Garðarssyni á Hamingjudögum í Hafnarfirði.
Jónatan leiðir þátttakendur um svæðið og segir frá sögu Víðistaða, fólkinu sem þar bjó og starfaði, og þeim fjölbreyttu hugmyndum og atburðum sem hafa mótað þetta merka svæði í gegnum tíðina. Á leiðinni fáum við að kynnast vel kunnuglegu umhverfi frá nýju sjónarhorni og heyra sögur sem margir hafa ekki áður heyrt.
Gangan hentar öllum aldurshópum og börn eru sérstaklega velkomin. Við hvetjum þátttakendur til að taka með sér höfuðljós eða vasaljós til að gera kvöldgönguna enn skemmtilegri og ævintýralegri.
Göngum saman um Víðistaði, kveikjum á ljósunum og uppgötvum sögurnar sem leynast allt í kringum okkur.
Hamingjudagar í Hafnarfirði Sjóbað, jóga nidra, söngpartý og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í…
Hamingjuhlaup – 10 kílómetrarnir hans Krissa Þriðjudaginn 1. september kl.17:30 Hlaupahópur FH leiðir hlaupið og upphitunina og Krissi kemur okkur…
Fimmtudaginn 3. september kl. 17:30 – gengið frá bílastæði við Kaldárselsveg Komdu með í HamingjuHelgafellsgöngu þegar Rúnar Pálsson leiðir þátttakendur…
Föstudaginn 4. september kl. 20:00 Komdu og syngdu með undir berum himni í Hellisgerði þegar Guðrún Árný leiðir sannkallað HamingjuSöngpartý…
Miðvikudaginn 9. september kl. 17:00 – lautin við Skúlaskeið Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og…
Laugardagurinn 12. september kl. 12 – lautin við Skúlaskeið Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og…
Þriðjudaginn 15. september kl.17:30 Opið í Herjólfsgufunni frá kl. 17 – 19! Verði fjöldi þátttakenda það mikill að gufan fyllist þá…
Sunnudaginn 20. september frá kl. 13 – 16 Komdu og njóttu notalegrar samveru í frábærum félagsskap á prjónakaffi á Ægi!…
Miðvikudaginn 23. september kl. 19:00 – Gengið frá Víðistaðakirkju Komdu með í HamingjuGöngu um Víðistaðasvæðið með Jónatani Garðarssyni á Hamingjudögum…
Föstudaginn 25. september kl. 20:00 Njóttu notalegrar tónlistarstundar í einstöku umhverfi Hellisgerðis þegar Valdimar Guðmundsson stígur á svið ásamt undirleikara…