Tilraunasmiðjan

Tilraunasmiðjan, 1.hæð
nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is
Miðvikudaga frá kl. 15:00 - 19:00

Tilraunasmiðjan er frábært rými fyrir listasinnaða einstaklinga og hópa í Hafnarfirði. Rýmið er hannað með fjölbreytileika í huga og gefur einstaklingum jafnt og stórum hópum færi á að koma og prófa sig áfram í myndlist; málun,  teikningu og hönnun í gegnum námskeið og kennslu eða í frjálsu flæði.

Langar þig að vera með námskeið, vantar þig samastað til að læra nýja tækni eða endurheimsækja gömul listform? Í rýminu gefst þátttakendum tækifæri til að prófa nýja listmiðla, skapa óháð hæfni og þróa sína eigin listsköpun áfram í öruggu og skemmtilegu umhverfi.

Leigan er hófleg og fer eftir gjaldskrá hússins. Ef þú hefur áhuga, sendu okkur línu á nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt