
Tónlist er ókeypis aðstaða fyrir ungt tónlistarfólk í Hafnarfirði til að æfa, semja, pródúsera og vinna tónlist. Á staðnum eru tónlistarherbergi og æfingaaðstaða sem eru leigð út tónlistarfólk og hljómsveitir á aldrinum 13–20 ára. Aðstaðan er aðgengileg öllum og starfsmaður er á staðnum til að aðstoða ef þarf.
Hljómsveitir og aðrir sem eru að búa til tónlist komast í upptökuver hjá okkur til að taka upp sitt eigið efni undir leiðsögn. Sagan hefur sýnt að Músíkhúsið er frábær stökkpallur fyrir ungar og efnilegar hljómsveitir sem eru að stíga sín fyrstu eða önnur skref í hinum bráðskemmtilega heimi tónlistarinnar.