HaminguZumba í Suðurbæjarlaug – Fim. 17. sept kl. 17:30

Fimmtudaginn 17. september kl.17:30 

Komdu og hristu úr þér hversdagsleikann á HamingjuZumba í Suðurbæjarlaug á Hamingjudögum í Hafnarfirði.

Síkátu zumbínurnar leiða gleðina með fjöri, dansi og kraftmikilli tónlist sem fær brosið fram og líkamann á hreyfingu. Zumba er skemmtileg blanda af dansi og líkamsrækt þar sem aðalmarkmiðið er að hafa gaman og njóta stundarinnar saman.

Engin reynsla er nauðsynleg og allir eru velkomnir að taka þátt, óháð aldri eða getu. Frítt er í sund fyrir þá sem mæta á viðburðinn, þannig að tilvalið er að njóta laugarinnar fyrir eða eftir zumbatímann.

Komdu með góða skapið, taktu þátt í gleðinni og fylltu á orkuna með dansi, tónlist og skemmtilegri samveru!

Ábendingagátt