Kynningarfundir um K-PALS og G-PALS fyrir fjöltyngdar fjölskyldur

Foreldrum barna af erlendum uppruna í 1. og 2. bekk er boðið á kynningarfundi um nýjar lestraraðferðir, K-PALS og G-PALS, sem verið er að innleiða í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Á fundunum verður farið yfir hvernig lestraraðferðirnar styðja við lestrarnám barna og hvernig foreldrar geta fylgst með og stutt við nám barna sinna. Einnig gefst þátttakendum kostur á að spyrja spurninga og fá nánari upplýsingar um lestrarkennslu í skólunum.
Fundirnir eru ætlaðir foreldrum barna í 1. og 2. bekk úr öllum grunnskólum Hafnarfjarðar og verða haldnir í Hraunvallaskóla.

Mánudagur 28. september

  • Arabíska kl. 17:00
  • Pólska kl. 18:00

Miðvikudagur 30. september

  • Spænska kl. 17:00
  • Enska kl. 18:00
Ábendingagátt