Þriðjudaginn 1. desember kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á síðustu hádegistónleika ársins í Hafnarborg en þá verður söngkonan Kristín Einarsdóttir Mäntylä gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á efnisskránni verða aríur úr óperum eftir Wagner, Puccini, Dvořák og Verdi en tónleikarnir bera að þessu sinni yfirskriftina „Ástir kvenna“.

Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, flutti átta ára gömul til Íslands eftir að hafa alist upp í Uppsölum í Svíþjóð. Tónlistarlegt uppeldi sitt fékk hún í kórastarfi Langholtskirkju og síðar við Söngskólann í Reykjavík. Að loknu burtfararprófi hélt hún til Leipzig í Þýskalandi, þar sem hún lauk bæði meistaranámi og Meisterklasse-námi í óperusöng við Tónlistarháskólann Felix Mendelssohn Bartholdy. Þá hefur Kristín sungið við fjölmörg óperuhús í Þýskalandi, meðal annars í Würzburg, Dessau, Leipzig, Bonn og Altenburg.

Meðal hlutverka hennar eru Marie í Wozzeck eftir Alban Berg, Elle í La voix humaine eftir Francis Poulenc og Milica í Svadba eftir Önu Sokolović. Hún hefur jafnframt komið fram sem einsöngvari á tónlistarhátíðum og í tónlistarhúsum á borð við Konzerthaus Berlin og Bachfest Leipzig. Eftir tólf ár í Þýskalandi er Kristín nú flutt heim til Íslands og hefur hlotið fastráðningu við hina nýstofnuðu Óperu. Á þessu starfsári kemur hún meðal annars fram á opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu og syngur hlutverk Alice í Falstaff eftir Verdi. Hún mun svo fara með sópranhlutverkið í sýningunni M.A.R.S. við óperuhúsið í Bonn síðar í vetur.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Ábendingagátt