Lagt fram til kynningar tilboð Ranníss sem kallast „Vísindamaður að láni, tilboð til grunnskóla skólaárið 2007 – 2008″%0DTiboðið er hugsað til að örva áhuga grunnskólanemenda á náttúrufræðigreinum og er skólum að kostnaðarlausu.
Fræðsluráð
á Skólaskrifstofu
Ritari
- Magnús Baldursson fræðslustjóri
-
Almenn erindi
-
0711012 – Vísindamaður að láni
Fræðsluráð óskar eftir viðbrögðum skólastjórnenda við þessu verkefni.
-
0711011 – Ályktun frá kennurum Víðistaðaskóla
Lögð fram ályktun frá starfsmannafundi sem haldinn var 4. október í Víðistaðaskóla varðandi ítrekun menntamálaráðuneytisins um að óheimilt sé að innheimta gjald vegna námstengdra vettvangsferða nemenda á vegum skóla.%0D%0D
Fræðsluráð er með málið í vinnslu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
-
0708151 – Staðan í ráðningarmálum í leik- og grunnskólum í byrjun skólaársins 2007-2008
Lagðar fram tillögur starfshóps sem skipaður var af fræðsluráði 8. október sl. til að gera tillögur um markvissar aðgerðir í starfsmannamálum í leik- og grunnskólum í Hafnarfirði.%0DTillögurnar voru samþykktar samhljóða í starfshópnum og samþykkt að vísa þeim til fræðsluráðs.
Fræðsluráð samþykkir tillögurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til gerðar fjárhagsáætlunar 2008.%0D%0D
-
0711013 – Skólar á grænni grein
Lagt fram til kynningar bréf frá Landvernd til sveitarstjórna varðandi skóla á grænni grein.%0DÍ bréfinu er verkefninu lýst, en það er alþjóðlegt umhverfisverkefni fyrir skóla. Grænfánaskólar á Íslandi eru nú 43 þar af 3 í Hafnarfiði. Það eru tveir grunnskólar:Engidalsskóli og Öldutúnsskóli og einn leikskóli:Norðurberg.
%0DÁheyrnarfulltrúar vegna grunnskóla viku af fundi kl.9:00
-
0711014 – Ungbarnaleikskóli
Lagt fram bréf, dags. 25.október 2007 frá Helgu Björgu Axelsdóttur og Svövu Björgu Mörk, leikskólakennurum þar sem óskað er eftir samningi við Hafnarfjarðarbæ um rekstur ungbarnaleikskóla í bæjarfélaginu.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur fræðslusviði og formanni fræðsluráðs að ræða við bréfritara.
-