Fjárhagsáætlun hafnarinnar 2008, síðari umræða.%0D%0DHafnarstjóri lagði fram leiðrétta áætlun í samræmi við fyrri umræðu um áætlunina og samráð við formann hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn
á hafnarskrifstofu
Ritari
- Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
-
Almenn erindi
-
0708182 – Fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir 2008
Hafnarstjórn samþykkir framlagða rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir Hafnarfjarðarhöfn 2008 og leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að samþykkja hana eins og hún er.
-
0702340 – Flutningur flotkvíar, slippur, Óseyrarbraut 31 ofl.
Lögð fram fundargerð 6. verkfundar og drög að fundargerð 7. verkfundar um flutning flotkvíar frá Háabakka.
-
0705083 – Gamli lóðsbátur
Lagt fram erindi Þjóðminjasafns Íslands og Minjavarðar Hafnarfjarðar um varðveislu gamla lóðsbáts Hafnafjarðarhafnar, sem er í geymslu hjá Þjóðminjasafninu í Kópavogi.%0DEinnig voru lagðar fram ljósmyndir af bátnum í kópavogi.
Hafnarstjórn samþykkir að færa Þjóðminjasafni Íslands gamla lóðsbátinn, að gjöf.%0DJafnframt felur hafnarstjórn hafnarstjóra að ræða við minjavörð Hafnarfjarðar um kostnað og fleira við að láta gera líkan af bátnum.
-
0701390 – Fjölsmiðjan, sjávarútvegsdeild.
Lögð fram staða viðskipta Fjölsmiðjunnar.
-
0702364 – 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Formaður afmælisnefndar gerði hafnarstjórn grein fyrir störfum nefndarinnar.
-
0708086 – Æfingar utanaðkomandi á hafnarsvæðinu.
Lagt fram svarbréf Landhelgisgæslu Íslands dagsett 31. október 2007, við bréfi hafnarinnar dagsettu 18. september 2007.
-
0711008 – Óseyrarbraut 26, nýtingarhlutfall
Lögð fram umsókn Atlantsskipa ehf. um hækkun nýtingarhlutfalls lóðarinnar Óseyrarbrautar 26 úr 0,3 í um 0,6, dagsett 31. október 2007, undirrituð Símon Kjærnested.
Þegar nýtingarhlutfall lóða við hafnarbakka var ákveðið eins og það er í skipulagi var vandað vel til verka og nýtingarhlutfallið miðað við að lóðirnar nýtist sem best til vöruflutninga og annarrar sambærilegrar hafnsækinnar starfsemi.%0D%0DHafnarstjórn getur ekki orðið við erindinu, vegna þess ójafnvægis sem gæti myndast við nýtingu lóðarinnar til framangreindrar starfsemi.
-