Bæjarráð

18. október 2007 kl. 12:00

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 3185

Mætt til fundar

Ritari

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir ritari bæjarráðs
  1. Almenn erindi

    • 0709109 – Eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja

      Gunnar Svavarsson fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn Hitaveitu Suðurnesja mætti á fundinn og gerði grein fyrir eigendafundinum sem haldinn var mánudaginn 15. október sl.

      Gert var stutt fundarhlé og að því loknu var fundi fram haldið.%0D%0DFulltrúar Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:%0D%0D“Bæjarráð Hafnarfjarðar áréttar á grundveli hluthafasamkomulags milli fjögurra stærstu hluthafa i Hitaveitu Suðurnesja hf. frá því í júlí sl. að engar breytingar séu gerðar á samþykktum og félagslegri stöðu HS hf. án aðkomu allra eigenda félagsins. Jafnframt ítrekar bæjarráð Hafnarfjarðar að þeir þættir sem snúa að uppskiptingu HS hf. og fjallað er um í samrunasamkomulagi REI og Geysis Green hafa ekki verið formlega teknir fyrir á eigendafundi HS hf.“ %0D%0DÁheyrnarfulltrúi VG tekur undir bókunina. %0D%0DFulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.

Ábendingagátt