Jóna Ósk Guðjónsdóttir mætti til fundarins og kynnti nefndarmönnum notkun fundargáttar fyrir fundi nefndarinnar.
Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Ritari
- Guðjón Ingi Eggertsson Verkefnisstjóri Sd 21.
-
Almenn erindi
-
0701156 – OneSystems, málaskrárkerfi
Frestað milli funda.
-
0707116 – Umhverfisnefnd MSÍ, kynning.
Lagt fram bréf, ódags., frá umhverfisnefnd MSÍ, þar sem óskað er eftir samstarfi vegna vandamála sem koma upp vegna utanvegaaksturs vélhjólamanna. Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfisnefndar á fundi þann 16. ágúst.
Nefndin felur verkefnisstjóra Sd 21 að gera uppkast að svari við bréfinu og leggja fyrir næsta fund.
-
0706352 – Endurheimt fuglalífs, engir lausir kettir.
Lagt fram erindi frá Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur kt. 270939-2959 um endurheimt fuglalífs-engir lausir kettir. Bæjarráð vísaði erindinu umsagnar hjá umhverfisnefnd og heilbrigðisnefnd á fundi 29. júní.
Nefndin felur verkefnisstjóra Sd 21 að gera uppkast að svari við bréfinu og leggja fyrir næsta fund.
-
0706237 – Vistvernd í verki, samningur.
Endurnýjun samnings Hafnarfjarðarbæjar og Landverndar um verkefnið „Vistvernd í verki“.
Nefndin samþykkir áframhaldandi þátttöku í verkefninu, fjármagn verði tekið af lið Staðardagskrár 21.
-