Reikningur lagður fram.
Menningar- og ferðamálanefnd
Vesturgötu 8
Ritari
- Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
-
Almenn erindi
-
0706077 – Ársreikningur Hafnarfjarðarleikhússins 2006
Óskað eftir álitsgerð frá rekstrarteymi bæjarins og að það yfirfari reikninginn. Einnig óskar nefndin eftir að fulltrúi frá rekstrarteymi og framkvæmdastjóri Hafnarfjarðarleikhússins mæti á næsta fund þegar ársreikningurinn verður aftur til umfjöllunar.
-
0706082 – Upplýsingaskilti í Hellisgerði um álfa og þjóðtrú.
Greint frá skiltum sem sett verða upp í Hellisgerði að fengnu samþykki Framkvæmdasviðs. Lögð fram hugmynd að útliti og texta.
-
0704265 – Hádegisfundir ferðaþjónustunnar
Næsti fundur verður haldinn 7. júní hjá Íslandsvinum.
-
0706080 – Bjartir dagar, Sjómannadagur og Jónsmessuhátíð í Hellisgerði 23. júní
Greint frá viðtökum Bjartra daga og Sjómannadagsins og lögð fram dagskrá Jónsmessuhátíðar í Hellisgerði.
-
0704009 – Miðhella 1, miðstöð fyrir listamenn
Lögð fram skýrsla þar sem málið er kynnt. Einnig lögð fram teikning af Strandgötu 75, húsnæði sem Ingvar Guðmundsson hefur hug á að leigja bænum sem aðstöðu fyrir listamenn.
Nefndin óskar eftir að haldinn verði kynningarfundur fyrir þá sem málið varðar og báðir möguleikar skoðaðir.
-