Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu mætti til fundarins og sagði frá vistun Stóru upplestrarkeppninnar á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og kynnti nýja heimasíðu keppninnar.%0Dwww.hafnarfjordur.is/upplestur%0D%0DIngibjörgu þakkað fyrir kynninguna.
Fræðsluráð
á Skólaskrifstofu
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
0810213 – Stóra upplestrarkeppnin
-
0808196 – Engidalsskóli, aðstoðarskólastjóri
Fyrir teknar á ný umsóknir um stöðu aðstoðarskólastjóra Engidalsskóla. Lagt fram bréf, dags. 9. október 2008 frá skólastjóra Engidalsskóla þar sem hún mælir með að Arna Björný Arnardóttir verði ráðin í stöðuna.%0DFræðslustjóri tekur undir tillögu skólastjóra.
Fræðsluráð samþykkir tillögur um að Arna Björný Arnardóttir verði ráðin aðstoðarskólastjóri Engidalsskóla.
-
0810214 – Lækjarskóli - styrkbeiðni
Lagður fram tölvupóstur frá ferðanefnd Starfsmannafélags Lækjarskóla þar sem sótt er um styrk vegna fyrirhugaðrar námsferðar til Boston í febrúar 2009.
Fræðsluráð vísar umsókninni til afgreiðslu samhliða fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2009.
-
0810223 – Skóla- og velferðarmál
Farið yfir stöðu skólanna í Hafnarfirði í ljósi aðstæðna og rædd stuðningsúrræði sem í boði eru. %0DVegna þessa liðar mætti Eiríkur Þorvarðarson, yfirsálfræðingur grunnskóla á Skólaskrifstofu, til fundarins.
Eiríki þakkað fyrir.
-
0810215 – Dagur íslenskrar tungu - 2008
Lagt fram bréf dags. 8. október 2008 þar sem minnt er á dag íslenskrar tungu 16. nóvember nk. Í bréfinu er hvatt til þess að dagsins sé minnst með einum eða öðrum hætti í leik- og grunnskólum.
Hátíðin „Hafnarfjörður í tali og tónum“ verður í Hásölum á degi íslenskrar tungu kl. 17.%0D%0D%0DÁheyrnarfulltrúar vegna grunnskóla viku af fundi kl. 9:00.
-
0810061 – Liljuvellir, nafn á leikskóla
Fræðsluráð samþykkti að leikskólinn fengi nafnið Liljuvellir.
-
0810216 – Ungbarnadeildir - viðmið
Lagt fram bréf dags. 14. október 2008 frá leikskólastjórum í Hafnarfirði þar sem óskað er eftir því að skilgreind verði viðmið fyrir ungbarnadeildir með tilliti til rýmis og aldurs.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur fræðslusviði að vinna að og gera tillögu um nefnd viðmið.%0D%0D%0DÁheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi %0Dkl. 9:15.
-
0810224 – Fjárhagsáætlun fræðslusviðs - 2009
Formaður fór yfir tíma- og vinnuáætlun vegna fjárhagsáætlunargerðar fræðslusviðs fyrir árið 2009.
-