Lagt fram yfirlit yfir námskeið á vegum Skólaskrifstofu fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla Hafnrfjarðar.
Fræðsluráð
á Skólaskrifstofu
Ritari
- Magnús Baldursson fræðslustjóri
-
Almenn erindi
-
0810051 – Námskeiðshandbók grunnskóla haust 2008
-
0810059 – Víðistaðaskóli - húsnæðisbreytingar
Lagt fram bréf dags. 1. október frá skólastjóra Víðistaðaskóla þar sem farið er fram á húsnæðisbætur vegna aðstöðu fyrir unglinga.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og vísar því áfram til úrvinnslu á framkvæmdasviði.
-
0808196 – Engidalsskóli, aðstoðarskólastjóri
Lagðar fram umsóknir um stöðu aðstoðarskólastjóra Engidalsskóla.%0DEftirtaldir sækja um:%0DAnna María Skúladóttir%0DArna Björný Arnardóttir%0DJóhanna Þuríður Þorsteinsdóttir%0DKristinn Svavarsson
-
0809243 – Fjárhagsáætlun 2008, endurskoðun
Lögð fram til kynningar tillaga að endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008 sem lögð var fram í bæjarstjórn 30. september sl.
-
0810077 – Sakaskrá, öflun upplýsinga.
Ný lög um ráðningu starfsmanna.%0DLögð fram til kynningar verkferlar og eyðublöð.
%0DÁheyrnarfulltrúar vegna grunnskóla viku af fundi kl. 8:30
-
0809195 – Leikskólinn Álfasteinn, skipulagsdagar
Sbr. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 22.september sl. Lagt fram faglegt mat Skólaskrifstofu á umsókninni þar sem mælt er með því að heimila þrjá samliggjandi skipulagsdaga vegna námsferðarinnar.
Fræðsluráð samþykkir að leikskólinn fái heimild til þriggja samliggjandi skipulagsdaga á vorönn 2009.
-
0810061 – Leikskólinn við Liljuvelli - nafn
Formaður leggur til að á næsta fundi fræðsluráðs komi fundarmenn með tillögur að nafni leikskólans við Liljuvelli. Valin verði fjögur til fimm nöfn úr þeim tillögum sem berast og gerð skoðanakönnun á heimasíðu bæjarins um þau.
-
0809210 – Leikskólarými, mat á þörf
Sbr. lið 7 í fundargerð fræðsluráðs frá 22. september sl. Tillagan tekin fyrir að nýju.
Fræðsluráð samþykkir að fela fræðslusviði að leggja mat á þörf leikskólarýma í Hafnarfirði miðað við íbúaþróun síðustu ára og áætla íbúaþróun næstu ára út frá eftirfarandi forsendum:%0D%0D-Öll börn 18 mánaða og eldri fái leikskólavist að hausti og börn í forgangshópi frá lokum töku fæðingarorlofs.%0D%0D-Öll 15 mánaða börn og eldri og börn í forgangshópi frá lokum töku fæðingarorlofs fái leikskólapláss að hausti frá haustinu 2010.%0D%0D-Öll 12 mánaða börn og eldri og forgangshópar sem ekki njóta 12 mánaða fæðingarorlofs, fái leikskólavist frá haustinu 2012, gengið er út frá því að fæðingarorlof hafi verið lengt í 12 mánuði. %0D%0DJafnframt verði tillögunni vísað til meðferðar hjá vinnuhópi um endurskoðun skólastefnu Hafnarfjarðar.%0D%0DÁheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi kl. 8:50.
-