Á fundinn mæta Stefán Veturliðason og Kristinn Magdal Jónsson frá VSB verkfræðistofu og fara yfir málið.
Framkvæmdaráð
í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2
Ritari
- Gunnar Svavarsson
-
Almenn erindi
-
0809184 – Ástand fráveitukerfisins á miðbæjarsvæðinu
Framkvæmdaráð heimilar Framkvæmdasviði að leita tilboða í fóðrun á Fjarðargötulögn og heimilar fóðrun frá Firði að Linnetsstíg. Jafnframt verði brunna við Linnetsstíg lagfærðir.
-
0702368 – Hamranes/Vellir grunn- og tónlistarskóli
Staða útboðs á forhönnunar.
Framkvæmdaráð heimilar fasteignafélaginu að tilgreina nýja dagsetningu á skiladegi lausna.
-
0808223 – Opnun nýrra mannvirkja hjá Hafnarfjarðarbæ
Hús Framkvæmdasviðs verður vígt 26. september n.k. milli kl. 16-18 og síðan verði opið fyrir almenning 12. október í tengslum við Byggingardaga. %0DVígsla Hraunvallaskóla verður 3. október og vígsla leikskólans Hamravöllum 2. október.
-
0806168 – Framkvæmdir ársins, bókun
Tekið fyrir að nýju.
-
0809225 – Vatnsveita, þjónustugjöld
Lagt fram.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskað bókað: Óskað er eftir því að lagt verði fram yfirlit yfir 10 stærstu kaupendur á vatni samkvæmt mæli, ónafngreint, fyrir árið 2007.
Fundargerðir
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lagðar fram verkfundargerðir nr. 8 vegna frjálsíþróttahúss og nr. 38. vegna jarðvinnu.
-
0702174 – Hraunvallaskóli, 3. áfangi
Lagðar fram verkfundargerðir nr. 97 og 98.
-